Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Fimm nýir veitingastaðir bætast við veitingaflóru Keflavíkurflugvallar
Matarunnendur hafa ástæðu til að gleðjast næsta vor þegar fimm nýir veitingastaðir bætast við veitingaflóru Keflavíkurflugvallar. Bæði þekktir og nýir veitingastaðir opna á tveimur svæðum inni á flugvellinum. Á öllum veitingastöðunum verður mikið lagt upp úr hröðum afgreiðslutíma og verður bæði hægt að borða á stöðunum og taka veitingarnar með í umhverfisvænum umbúðum.
Hlýleg miðbæjarstemning á flugvellinum
Þrír veitingastaðir munu rísa í aðalbyggingu flugvallarins á nýju veitingasvæði til austurs, þar sem hlýleg, notaleg og afslöppuð upplifun verður í fyrirrúmi. Þetta eru staðirnir
Yuzu, La Trattoria og Zócalo.
Hönnun svæðisins er unnin af HAF Studio, sem hefur skapað heildrænt rými sem minnir á útisvæði og stemmningu eins og hún gerist best í miðborg Reykjavíkur. Svæðið mun halda vel utan um gesti veitingastaðanna þriggja og mynda eina heild.
Til að gefa rýminu sanna götustemmningu verða íslenskir listamenn fengnir árlega til að hanna nýja veggjakrots-myndskreytingu (graffiti) á svæðinu. Einnig verður í boði fyrir listræna krakka að teikna eigið listaverk á stafrænan veggjakrotsvegg til að stytta biðina á vellinum.
Mikil fjölbreytni verður í mat og drykk og framboðið ólíkt á milli veitingastaðanna þriggja til að koma til móts við þarfir og óskir sem flestra gesta. Hamborgarastaðurinn Yuzu er vel þekktur meðal matgæðinga og hefur staðurinn margoft hlotið verðlaun fyrir hamborgarana sína.
Á Yuzu verður boðið upp á vinsælustu réttina af matseðli þeirra, auk morgunverðar sem verður nýjung á seðlinum og sérstaklega þróað fyrir staðinn þeirra á flugvellinum. Framboðið á Yuzu er undir áhrifum af austurlenskri matargerð og þróað af stjörnukokkinum Hauki Má Haukssyni (Haukur chef), sem er jafnframt einn af eigendum staðarins.
La Trattoria er íslenskur veitingastaður sem býður upp á ítalska rétti, þar sem áhersla er lögð á hágæða hráefni og einfaldleika. Staðurinn opnaði fyrst í mathöllinni í Hafnartorgi og hefur notið mikilla vinsælda síðan.
Hrefna Sætran, einn af okkar þekktustu kokkum, og Ágúst Reynisson veitingamaður, eiga heiðurinn að matseðlinum á La Trattoria. Sérstök viðbót á nýja matseðlinum á flugvellinum verða ljúffengar pizzur fyrir gesti.
Zócalo er mexíkósk skyndibitakeðja í eigu Einars Arnar Einarssonar, annars stofnandi Serrano á Íslandi. Fyrsti Zócalo staðurinn var opnaður í Svíþjóð árið 2015, en í dag eru þeir orðnir sextán talsins í þremur löndum. Á Zócalo verður boðið upp á ferskan og hollan mexíkóskan mat sem hentar ólíkum þörfum á öllum tímum dagsins.
Fleiri staðir í suðurbyggingu
Veitingaframboðið á 1. hæð í suðurbyggingu flugvallarins er sérsniðið að erlendum tengi- og brottfararfarþegum sem eru flestir á leið til Bandaríkjanna eða Bretlands. Úrvalið endurspeglar þarfir þeirra og er áhersla lögð á einfaldan mat sem farþegar þekkja en með íslensku ívafi í hráefni og hönnun.
Þar opnar nýr íslenskur veitingastaður, Keflavík Diner, og veitingastaðurinn Sbarro sem er mörgum góðkunnur. Nýi staðurinn Keflavík Diner sækir innblástur sinn í sögu svæðisins og er með skírskotun til tímans þegar ameríski herinn var í Keflavík á árunum 1951-2006. Í boði verður fjölbreyttur matseðill með áherslu á ameríska matargerð í bland við íslenska rétti.
Isavia opnaði útboð á þessum tveimur svæðum á vordögum. Tveir aðilar uppfylltu hæfiskröfur útboðsins og skiluðu inn fullgildum tilboðum. Matsferli tilboðanna fól m.a. í sér að meta veitingaframboð, ferskleika veitinga, verðlagningu og þjónustu, auk hönnunar staðanna og sjálfbærni. Lagardere Travel Retail reyndist hlutskarpast í útboðinu en fyrirtækið er þegar í rekstri á Keflavíkurflugvelli.
Meðfylgjandi eru tölvuteiknaðar myndir: Haf Studio fyrir Lagardere Travel Retail
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Keppni1 dagur síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni2 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana