Markaðurinn
Sumarostakakan með sítrónuþekju færir þér sumarið
Sala er hafin á sumarostakökunni úr Eftirréttalínu MS hjá Mjólkursamsölunni. Þessi frísklega terta er í sölu yfir sumarið enda fer hún einstaklega vel á veisluborðum á þessum árstíma. Sítrónuþekjan og liturinn parast vel saman svo úr verður sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana og sumarstemningin magnast upp við hvern bita.
Ostakökur eru sígildar og vinsælar sem eftirréttur að lokinni góðri máltíð. Þær eru einnig góðar einar sér með ilmandi kaffibolla, kakói eða ískaldri mjólk. Það er um að gera að skreyta Sumarostakökuna með litríkum blómum og sítrónusneiðum og þá er einnig ljúft að bera hana á borð með þeyttum rjóma.
Til fróðleiks má geta að auðveldlega má fjarlægja álformið utan af kökunni með því að klippa lóðrétt frá toppi og niður að botni og einfaldlega rífa brúnina af allan hringinn. Þá er auðvelt að koma breiðum spaða undir kökuna og flytja hana yfir á fallegan kökudisk.
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





