Frétt
Endurskoðuð handbók um mataræði í framhaldsskólum komin út
Ný Handbók um mataræði í framhaldsskólum hefur verið gefin út hjá embætti landlæknis. Síðasta handbók fyrir framhaldsskóla er frá árinu 2010. Miklar breytingar hafa orðið á matarumhverfi nemenda á þessum tíma og kom starfsfólk framhaldsskóla að gerð þessarar handbókar.
Handbókin byggir á ráðleggingum um mataræði sem embætti landlæknis gefur út. Í handbókinni eru leiðbeiningar um æskilegt fæðuframboð í hádegismat og hvaða framboð á matvælum er æskilegt yfir daginn í framhaldsskólum. Einnig má finna hagnýtar upplýsingar um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, jurtafæði, fæðuofnæmi og fæðuóþol, innkaup og matarsóun svo eitthvað sé nefnt. Að auki eru í handbókinni fjöldinn allur af uppskriftum. Handbókin er eingöngu aðgengileg á rafrænu formi.
Handbókin er fyrst og fremst ætluð sem stuðningur fyrir þá sem útbúa mat fyrir nemendur í framhaldsskólum og þá sem hafa áhrif á hvaða matur er þar í boði. Einnig getur efni hennar nýst sem kennsluefni í viðeigandi fögum eins og næringarfræði og því mikilvægt að starfsfólk framhaldsskóla viti af tilvist þessarar handbókar.
Tilgangurinn með útgáfu handbókarinnar er að auðvelda skólum að bjóða nemendum hollan, góðan og öruggan mat. Í handbókinni er sérstaklega hugað að fjölbreyttu fæðuvali, fiskmáltíðum, grænmetisréttum, neyslu ávaxta og grænmetis, heilkornavara, auk vatnsdrykkju. Einnig er lögð áhersla á að nota D-vítamínbætta mjólk og jurtamjólk fyrir nemendur sem ekki drekka mjólk.
Mikilvægt er að framhaldsskólar móti stefnu á sviði næringar og að starfsfólk hafi yfirsýn yfir hvaða matur stendur nemendum til boða meðan á dvöl þeirra í skólanum stendur. Nauðsynlegt er að stjórnendur skólans og starfsfólk eldhúss fundi reglulega til að fara yfir næringarstefnu skólans sem og starfsemi og skipulag eldhúss.
Það er von embættisins að handbókin komi að góðu gagni við að stuðla að fjölbreyttu og hollu mataræði framhaldsskólanemenda.
Lesa má handbókina í heild sinni hér.
Mynd: af vef embætti landlæknis
-
Uppskriftir3 dagar síðan
Jóla gúrkur – Asíur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr Indverskur veitingastaður opnar í Miðbæ Selfoss
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Girnilegt smurbrauð hjá Skál á nýjum jólamatseðli
-
Frétt4 dagar síðan
KS hyggst kaupa B. Jensen – Ágúst Torfi: Ég get staðfest að það eru alvarlegar viðræður í gangi…
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Jól á Ekrunni
-
Bocuse d´Or1 dagur síðan
Sindri Guðbrandur keppir 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Nýtt á matseðli5 dagar síðan
Hægeldaður saltfiskur
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Ristorante Pizza Margherita komin í vöruúrval Innnes