Markaðurinn
MS tekur vel á móti gestum landbúnaðarsýningarinnar
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2022 verður haldin í Laugardalshöll dagana 14.-16. október en markmið hennar er að kynna íslenskan landbúnað fyrir almenningi og á sama tíma að leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Mjólkursamsalan er á meðal þeirra tæplega 100 sýnenda sem taka þátt í ár og er óhætt að segja að starfsfólk MS hlakki til að taka á móti þeim sem leggja leið sína í Laugardalinn um helgina.
Við ætlum að bjóða upp á úrval íslenskra osta, skyrsmakk og kynna nýjustu vörur okkar fyrir gestum og gangandi. Á meðal nýjunga er einstaklega ljúffengt og spennandi KEA skyr sem verður aðeins á markaði í nokkrar vikur og óhætt að segja að hönnun umbúðanna sé ólík öllu sem íslenskir skyraðdáendur hafa séð áður.
Nokkur ár eru síðan samskonar sýning var haldin og meðal þess sem gestum sýningarinnar verður boðið upp á er matur úr íslenskri sveit, þar sem fjölmörg fyrirtæki kynna hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu; tækjasýning úti og inni á ýmsum tækjum, tólum og vörum sem notuð eru við landbúnað og þá er afar áhugaverð fyrirlestradagskrá um íslenskan landbúnað.
Sjáumst á Landbúnaðarsýningunni!
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn4 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Keppni18 klukkustundir síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Markaðurinn5 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina




