Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Nýsköpunarsmakk í Iðnó

Birting:

þann

Nýsköpunarvikan heldur í fyrsta sinn í ár Nýsköpunarsmakk í Iðnó á föstudaginn frá 16:00-18:00 og eru öll velkomin. Frumkvöðlar í mat og drykk munu bjóða gestum upp á að smakka afurðir sínar.

Það verður fjölbreyttur úrval í boði: steikt témpeh frá Vegangerðinni, fersk krydd frá Mabrúka beint frá Túnis, rjómalíkjör frá Jökla, drykkir frá Eimverk, Pestó frá Pesto.is, gos frá Könglum, íslenskt kombucha frá Kubalubra, sinnep frá Svövu og stökkan ost frá Lava Cheese.

Nýsköpunarsmakk í Iðnó

Fersk krydd frá Mabrúka beint frá Túnis

Þarna er kjörið tækifæri fyrir veitingageirann að kynnast nýju hráefni sem er framleitt á Íslandi.

Frumkvöðlarnir í Vegangerðinni (ekki Vegagerðinni) hafa séð um að skipuleggja Nýsköpunarsmakkið og fengu mikla aðstoð frá fyrirtækinu Karrot og Samtökum smáframleiðanda (SSM).

Nýsköpunarsmakk í Iðnó

Kristján Thors, meðstofnandi Vegangerðarinnar og einn skipuleggjenda Nýsköpunarsmakks. Kristján heldur á ferskum témpeh hleif frá Vegangerðinni.

„Þökk sé lifandi samfélagi og duglegum sprotum tókst okkur að ná saman góðum hópi í Iðnó með fjölbreytt úrval.  Ísland hefur að geyma öfluga matarsprotasenu sem kemur flestu fólki á óvart.“

Segir Kristján Thors, einn skipuleggjanda.

Nýsköpunarvikan er alþjóðleg og er einnig kölluð Iceland innovation week og er haldinn árlega á vorin. Þar er að finna röð fyrirlestra frá sprotum og fyrirtækjum í nýsköpun, heimboða til sprotafyrirtækja og matarboða.

Hægt er að skoða viðburðinn hér á Facebook.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið