Starfsmannavelta
Haukur hættir rekstri í Baulunni um næstu mánaðamót
Baulan veitingar ehf mun hætta sem rekstraraðili Baulunnar í Borgarfirði 1. júní næstkomandi. Það er Haukur Ragnarsson framreiðslumaður og veitingamaður sem hefur rekið staðinn undir þessu nafni síðan fyrir um það bil ári, að því er fram kemur á vefnum Skessuhorn.is. Haukur starfaði áður sem veitingamaður hjá Brasserie Askur.

Baulan er matvöruverslun sem býður upp á allar nauðsynjavörur og eins matsölustaður þar sem meðal annars er boðið upp á hamborgara, pizzur, kótilettur, pylsur, heitar og kaldar samlokur, kaffi, te, gos, bjór og léttvín.
Ekki liggur fyrir á þessu stigi hver tekur við rekstrinum 1. júní.
Myndir: facebook / Baulan
-
Keppni4 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn4 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt5 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn1 dagur síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu



