Frétt
Frestur til að kynna sér drög að nýjum gæða- og umhverfisviðmiðum Vakans að renna út
Endurskoðun gæða- og umhverfisviðmiða Vakans, fyrir ferðaþjónustu aðra en gistingu, hefur staðið yfir á þessu ári og mun ný útgáfa taka gildi um komandi áramót. Um er að ræða 5. útgáfu almennra og sértækra gæðaviðmiða ásamt umhverfisviðmiðum. Á vefsíðu Vakans hefur aðilum gefist tækifæri á að kynna sér drögin um nokkurra mánaða skeið en frestur til að senda inn ábendingar eða athugasemdir rennur út 1. desember n.k.
Breyttar áherslur
Endurskoðun þessi tekur óhjákvæmilega mið af þeim veruleika sem við höfum búið í undanfarin misseri og breyttum áherslum í kjölfar Covid-19 sem birtist í aukinni áherslu á þrif og sóttvarnir. Auk þess er lögð enn meiri áhersla á öryggi viðskiptavina með því að bæta við viðmiðum sem snúa að bættri upplýsingagjöf.
Vakinn – Á leið til sjálfbærrar ferðaþjónustu
Vert er að segja frá því að öll viðmið Vakans; umhverfis-, almenn- og sértæk gæðaviðmið, byggja að stórum hluta á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar þar sem kröfur Vakans tengjast á einn eða annan hátt þremur meginstoðum sjálfbærninnar þ.e. umhverfi, samfélagi og efnahag. Má í þessu sambandi t.a.m. nefna gátlistann Á leið til sjálfbærrar ferðaþjónustu, sem er nauðsynlegt fylgigagn fyrir vottun Vakans, en vinna við endurskoðun gátlistans stendur nú yfir.
Núverandi drög, sem finna má á vefsíðu Vakans hér, sem hafa nú þegar tekið nokkrum breytingum. Ef áhugi er á að kynna sér uppfærð drög er aðilum bent á að senda póst á [email protected]
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn4 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu



