Viðtöl, örfréttir & frumraun
Sjávargrillið fagnar 10 ára afmæli – Myndband
Veitingastaðurinn Sjávargrillið við Skólavörðustíg 14 í Reykjavík fagnar 10 ára afmæli sínu um þessar mundir og því ber að fagna. Lítið er um hátíðarhöld vegna heimsfaraldurs, en staðurinn vonast til að fagna þessum tímamótum með vorinu.
„Sjávargrillið er 10 ára í dag! Þessum merka áfanga hefði ekki verið hægt að ná án okkar yndislega starfsfólks. Við viljum einnig þakka viðskiptavinum okkar samfylgdina í gegnum árin. Vegna samkomutakmarkana ætlum við að bíða með hátíðarhöld en munum vonandi geta fagnað þessu rækilega með ykkur í vor,“
segir í tilkynningu á facebooksíðu Sjávargrillsins.
Eigandi Sjávargrillsins er Húsvíkingurinn Gústav Alex Gunnlaugsson matreiðslumeistari. Staðurinn hefur verið rekinn við góðan orðstír allt frá því opnun staðarins.
Ævintýrið hófst árið 2010 þegar Gústav hreppti titilinn Matreiðslumaður ársins og stefnan var tekin á að opna veitingastað. Sjávargrillið opnaði formlega 14. apríl árið 2011 og fagnar eins og áður segir 10 ára afmæli.
Stemning sjávargrillsins er einstök eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi sem sýnir í byrjun veitingastaðinn í heild sinni og svo stemninguna:
Innilega til hamingju með þennan stóra áfanga. Megi staðurinn halda áfram að vaxa og dafna um ókomin ár.
Til gamans, þá látum við fylgja með veitingarýni Sjávargrillsins sem birt var fyrir 8 árum síðan hér á veitingageirinn.is:
Heimasíða: www.sjavargrillid.is
Mynd: skjáskot úr myndbandinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Markaðurinn5 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt4 klukkustundir síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



