Keppni
Viltu taka þátt í Norðurlandamóti þjóna? – Skráning er hafin
Þriðjudaginn 3. september 2019 verður sett upp undankeppni fyrir áhugasama þjóna vegna Duni Cup 2020. Einu skilyrðin fyrir þátttöku er að viðkomandi þarf að vera útskrifaður framreiðslumaður.
Duni Cup er Norðurlandamót þjóna sem haldið verður í Herning 25. febrúar 2020. Keppnin er haldin ár hvert og hafa íslenski framreiðslumenn tekið þátt síðan árið 2015 og er mikill vilji hjá stjórnendum á Íslandi að halda því áfram.
Undankeppnin skiptist í þrennt:
- Skriflegt próf um almenna þekkingu og vinnubrögð
- Vínpörun og munnleg vörn
- Sterkvíns auðkenning
Sigurvegari keppir í Herning 25. febrúar 2020
Sá sem skorar hæðst í undankeppninni, öðlast keppnisréttindi í Norðurlanda mótinu og þar verður meðal annars keppt í:
- Uppdekning á 6 manna borði + service borð og vinnustöð
- Kampavíns Sabering
- Blindsmakk á léttvínum
- Suprice Service
- Fine dining service
Frekari tímasetningar og staðsetning tilkynnt síðar.
Skráning er hafin
Áhugasamir sendið póst á [email protected] og ykkur verður sent til baka nauðsynleg próf gögn og aðrar upplýsingar.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Markaðurinn6 dagar síðanVel heppnuð Matur & Vín sýning hjá Innnes – Myndir og myndband
-
Keppni3 dagar síðanFremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík
-
Markaðurinn4 dagar síðanFastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa
-
Markaðurinn4 dagar síðanOlifa og Danól hefja samstarf um ítölsk gæðahráefni fyrir fageldhús
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Markaðurinn3 dagar síðanBetri ráðningar með minni fyrirhöfn
-
Markaðurinn2 dagar síðanWolt og European Transport Safety Council í samstarf um öruggari götur




