Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Veitingastaðurinn Skál opnar í mathöllinni Zeppelin Station í Denver
Skál! veitingastaður á Hlemmi Mathöll opnar í kvöld SKÁL í mathöllinni Zeppelin Station í Denver Colorado.
Zeppelin Station er lifandi svæði þar sem renna saman skrifstofurými og matartorg með mismunandi veitingastöðum sem allir bera fram mat í “Street-food” stíl.
SKÁL vann á dögunum stóra viðurkenningu frá Michelin Guide sem kallast BIB-gourmand sem er veitt stöðum sem veita frammúrskarandi mat á sanngjörnu verði.
Gísli Matthías Auðunsson, yfirkokkur og einn eiganda Skál!, er búinn að vera í Denver síðustu tvær vikurnar að undirbúa opnun þessarar staðar í Zeppelin station sem hefur göngu sína í kvöld, að því er fram kemur í tilkynningu.
Það sem Zeppelin Station gerir er að skipta um þema á svæðinu af og til og nú næstu 6 vikurnar er þemað “Made in Reykjavík”. Þar verða einnig til sölu íslenskar hönnunarvörur, íslensk hráefni og fatnaður.

Þessi réttur hefur slegið í gegn hjá Skál, en þar segir á facebook:
„Þegar hugmyndin kom upp að opna stað í Hlemmi Mathöll fórum við að hugsa út í hvernig stað við vildum gera, eini heiti maturinn sem var boðinn fram á Hlemmi þar til að mathöllin opnaði var hin klassíska: Pylsa með öllu. Þetta veitti okkur mikinn innblástur í að skapa staðinn okkar.“
Mynd: Skál / facebook
Mikil leynd hefur ríkt yfir verkefninu hingað til en nú er það orðið opinbert að Skál! verði að bjóða uppá einföldun á sínum matseðli í “Street-food” stíl og þar ber helst að nefna pylsuna sem er orðið einkenni Íslendinga þegar kemur að Street-food.
Einn vinsælasti réttur Skál! frá upphafi er bökuð íslensk bleikja og er mikil eftirvænting Denverbúa að prófa íslenska matargerð.
-
Markaðurinn16 klukkustundir síðanPierre Koffmann heimsótti Finnsson í Kringlunni – Myndaveisla
-
Keppni4 dagar síðanMyndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Markaðurinn4 dagar síðanVittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLatínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
-
Markaðurinn1 dagur síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðanNýtt vörumerki hjá Nathan: Arco






