Keppni
Finlandia Box Glove Rumble | Töfruðu fram girnilega kokteila í boxhönskum
Pablo Discobar er þekktur fyrir að halda skemmtilegar og öðruvísi barþjónakeppnir fyrir barþjóna bæjarins fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. Engin undantekning var síðasta sunnudag en þá var haldin barþjónakeppninn “Finlandia Box Glove Rumble” í samstarfi við Mekka Wines & Spirits.
Óhætt er að segja að hún var öðruvísi enda kepptu barþjónarnir tveir og tveir saman í einu og þurftu að útbúa góðan Martini með boxhanska og máttu boxa hvorn annan á meðan en innan marka.
Yfirumsjón með þessum keppnum var í höndum yfirbarþjóns staðarins Teits Ridderman Schiöth og óhætt að segja að hann er með fjörugt ímyndunarafl.
Til að passa að þetta fór skynsamlega fram voru fengnir dómararnir Jón Arnar frá Mjölni, Friðbjörn frá Mekka og Daniel frá Deplum sem er einn af þekktari barþjónum landsins.
Eftirfarandi barþjónar kepptu og höfðu gaman af:
- Orri Páll frá Apotekinu
- Ivan Svanur frá Miami
- Alana frá Slippbarnum
- Fannar frá Sushi Social
- Helgi frá Pablo
- Arnór frá Burro
- Marcin frá Pablo
- Tóta frá Tapasbarnum
Útsláttarkeppni var í lok kvöldsins og gat bara verið einn sigurvegari og í þetta skiptið var það Tóta á Tapasbarnum sem sýndi bæði hæfileika í kokteilgerðinni og í boxhæfileikum.
Á meðfylgjandi myndum má sjá að mikil stemning hafi verið í keppninni.
Myndir tók Majid Zarei.
-
Frétt3 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Keppni21 klukkustund síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn6 dagar síðanEndurnýjaðu ræstibúnaðinn fyrir veturinn
-
Markaðurinn7 dagar síðanGefðu framreiðslunni upplyftingu með APS












































