Keppni
Hrafnhildur Sunna Eyþórsdóttir er Hraðasti Barþjónn Íslands 2025 – Myndaveisla
Keppnin um Hraðasta barþjóninn fór fram, 4. nóvember, í Kjallaranum á Sæta Svíninu við frábæra stemningu. Um er að ræða árlega hraðakeppni Barþjónaklúbbs Íslands í samstarfi við Fernet Branca, sem á undanförnum árum hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta barþjónakeppni ársins.
Rúmlega 30 keppendur tóku þátt í ár og þurftu þeir að sýna bæði hraða og nákvæmni. Verkefnið fólst í að:
- Hella tveimur Fernet Branca skotum
- Opna og hella tveimur Peroni bjórum
- Hrista í Jack Sour kokteil
Allt á sem skemmstum tíma.
Refsingar í formi aukasekúndna voru lagðar við fyrir mistök, svo sem að mæla rangt, hella framhjá eða sleppa skrefum.
Úrslit
Fjórir komust í úrslit og keppnin fór þar yfir í útsláttarkerfi. Tveir komust svo í ofurúrslitum:
- Hrafnhildur Sunna Eyþórsdóttir (Sæta Svínið)
- Óliver (Tipsý)
Í æsispennandi lokaspretti reyndist Hrafnhildur hraðari og nákvæmari og hlaut þar með titilinn: Hraðasti Barþjónninn 2025
Óliver hreppti verðskuldað 2. sæti eftir frábæra frammistöðu.
Stemning og gleði
DJ De La Rosa sá um tónlist og skapaði einstaka stemningu. Fjöldi gesta fylgdist með og studdi keppendur áfram, sem gerði kvöldið að sönnu hátíðarkvöldi íslenskrar bar-menningar.
„Þessi keppni sýnir orku, fagmennsku og gleði sem einkenna íslenska barsenu um þessar mundir. Það er ótrúlegt að sjá hversu hratt barþjónar í dag geta unnið.“
segir Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands.
Keppnin verður haldin aftur að ári, og ef eitthvað er, má búast við enn meiri stemningu.
Samhliða keppninni fór fram aðalfundur Barþjónaklúbbs Íslands, sem verður fjallað nánar um í annarri frétt ásamt myndum frá fundinum.
Meðfylgjandi myndir tók Ómar Vilhelmsson.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni3 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Frétt6 dagar síðanErfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
-
Markaðurinn2 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Markaðurinn1 dagur síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Markaðurinn2 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna

























































