Smári Valtýr Sæbjörnsson
Jólaborgarinn seldur í bílförmum – Veitingarýni
Að bjóða upp á hamborgara tileinkuðum jólum er sífellt að aukast og eru margir veitingastaðir sem bjóða upp á Jólaborgara.
„Mæli með jólaborgaranum á Torginu sem er svo vinsæll að hann selst í bílförmum“
sagði Daníel matreiðslumaður eitt sinn í léttu gríni. Ég sló að sjálfsögðu til og prófaði, meira að segja tvisvar.
Torgið á Siglufirði býður upp á einstaklega góðan jólahamborgara sem inniheldur 150 gramma nautaborgara frá Kjötsmiðjunni með 18% fituinnihaldi, grísapurusteik, heimalagað jólarauðkál, sojagljáðan lauk, chillimæjó og toppað með camembert. Þetta er svo borið fram í hamborgarabrauði frá Ölgerðinni með tómatsósu og frönskum.
Herlegheitin kosta 2.690 og eru í boði til áramóta.
Virkilega góður hamborgari. Gott jafnvægi á milli sætu og hamborgarans, flott eldun, nær medium rare en medium sem gerir hann einstaklega safaríkan. Í seinni heimsókn minni var hann aðeins meira eldaður, en engu að síður algjört lostæti. Ég hefði nú seint trúað því að ég ætti eftir að finna bragð af jólum í hamborgara. Einu sinni er allt fyrst!
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Frétt4 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Markaðurinn2 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði



