Frétt
Framtíðarsýn LABAK breytt til að taka af öll tvímæli
Í svarbréfi Landssambands bakarameistara, LABAK, til Samkeppniseftirlitsins kemur fram að framtíðarsýn félagsins hafi nú þegar verið breytt til að taka af öll tvímæli um þau atriði sem Samkeppniseftirlitið gerði athugasemdir við í stefnulýsingu LABAK frá stefnumótunarfundi samtakanna sem haldinn var 14. október 2016. Þá var þeim tilmælum beint til samtakanna að endurskoða þá stefnu og markmið samtakanna sem fram koma í stefnulýsingunni. Jafnframt var vakin athygli á að fordæmi séu fyrir því að samtök fyrirtækja setji sér innri reglur sem miði að því að samstarf aðildarfyrirtækja innan samtakanna verði ávallt samþýðanlegt samkeppnislögum.
Sjá einnig: Bakarar í sigti eftirlitsins
Í svarbréfinu þakkar LABAK, sem er aðildarfélag SI, Samkeppniseftirlitinu fyrir bréfið og tilmælin sem í því fólust. Í skýringum segir að við skoðun á fyrrnefndri stefnulýsingu sé ljóst að orðalag hennar sé óheppilegt og misvísandi hvað markmið og stefnu samtakanna varðar. Á heimasíðu Samtaka Iðnaðarins segir að LABAK vinni að sameiginlegum hagsmunum aðildarfélaga með því að stuðla að bættri hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum. Samtökin gera sér grein fyrir mikilvægi þess að tryggt sé að ekki myndist vettvangur þar sem upplýsingaflæði, sem leitt getur til röskunar á samkeppni, eigi sér stað milli aðildarfyrirtækja. Þá segir að forsvarsmönnum samtakanna sé fullljóst að viðskiptasamningar við birgja séu trúnaðarmál hvers og eins fyrirtækis og að sameiginleg innkaup af einhverju tagi geti brotið í bága við samkeppnislög. Slík sameiginleg innkaup hafi ekki átt sér stað og ekki staðið til heldur var verið að vísa til þess að félagsmönnum LABAK bjóðast stundum afsláttarkjör eða tilboð frá aðilum sem vilja vera í viðskiptum við félagsmenn LABAK.
Í svarbréfinu er þess jafnframt getið að innan Samtaka iðnaðarins sé nú unnið að því að innleiða í starf samtakanna samkeppnisréttarstefnu og samskiptaviðmið sem gilda um öll undirsamtök og önnur aðildarfélög samtakanna, þ.á.m. LABAK. Tilgangur samkeppnisréttarstefnunnar sé að tryggja fagleg og gegnsæ vinnubrögð í starfsemi samtakanna og fyrirbyggja háttsemi sem brotið gæti gegn samkeppnislögum.
Svarbréf LABAK til Samkeppniseftirlitsins.
Bref-LABAK-til-SKE-21-12-2017
Framtíðarsýn LABAK 2016 lagfærð.
Framtidarsyn-LABAK-2016-lagfaerd
Mynd: úr safni
-
Keppni3 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Frétt6 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT




