Vertu memm

Frétt

Omnom ætlar að gefa Eurovision aðdáendum popp fyrir partýið í kvöld

Birting:

þann

Omnom Popp

Á Grandanum leynast margar sælkeraverslanir, framleiðendur og listamenn. þar á meðal er súkkulaðiverksmiðja Omnom, Þið rennið á lyktina. Omnom er fyrsti súkkulaðiframleiðandinn á Íslandi sem býr til súkkulaði frá grunni, eða frá tré í bita (e.  from tree to bar ).

Omnom ætlar að búa til og gefa með sér súkkulaðipopp fyrir þá sem ætla að gleðjast og horfa á Svölu keppa 9. maí. Samkvæmt Omnom verður poppið húðað með Omnom súkkulaði í fimm litríkum glamúr bragðtegundum: Lakkrís + hindber, bláber, mangó + ástaraldin, jarðaber og matcha te.

Allir velkomnir í dag á meðan birgðir endast

Omnom býður alla velkomna að sækja sér þetta litríka og ljúffenga popp fyrir partýið í verslun Omnom í dag þriðjudaginn 9. maí milli kl. 11:00 og 18:00, á meðan birgðir endast. Poppinu verður pakkað í litríkt box og getur hver sótt sér eitt box.

Regnboga súkkulaði, poppálfar, alls kyns ást og diskóljós

Omnom - Hólmaslóð 4 úti á Granda

Fréttamenn veitingageirans fóru í fyrra í súkkulaðitúr um verksmiðjuna með Kjartani Gíslasyni matreiðslumanni

Í fréttatilkynnningu segir að í sumar ætlar Omnom teymið að endurtaka leikinn og þá mun hvert popp box innihalda 100% stuðning við Hinsegin daga í Reykjavík.

„Okkur hefur langað frá stofnun að styðja við réttindabaráttuna og hið góða starf Hinsegin daga. Hugmyndin að litríka poppinu varð til í einni þankahríðinni, okkur langaði að gera eitthvað litríkt í anda gleðigöngunnar en á sama tíma eitthvað fjölbreytt sem fólk gæti deilt og notið saman.”

segir Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður og einn af stofnendum Omnom.

Hátíðin er unnin af sjálfboðaliðum

Stjórn Hinsegin daga hlakkar til samstarfsins en hátíðin er unnin af sjálfboðaliðum:

„Við fögnum Því af heilum hug að fá Omnom í hóp stoltra styrktaraðila Hinsegin daga. Öll vinna við hátíðina okkar er unnin af sjálfboðaliðum og rekstrargrundvöllurinn byggir algjörlega á stuðningi velviljaðra fyrirtækja, einstaklinga og Reykjavíkurborgar. Við hlökkum mikið til að vinna áfram með Omnom og Þökkum Þeim fyrir að nálgast okkur með þessa skemmtilegu hugmynd og fallegu hugsjón.”

Í dag 9. maí verður popp í boði fyrir þá sem ætla að gera sér glaðan dag! Fólk er velkomið í verslun Omnom Hólmaslóð 4 frá kl. 11 til 18 og sækja sér poppbox á meðan birgðir endast.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið