Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Omnom opnar ísbúð
Aðstandendur súkkulaðigerðinnar Omnom láta drauma sína rætast og ætla á morgun, föstudaginn 25. september kl. 16 að opna ísbúð í rýminu fyrir framan súkkulaðigerðina að Hólmaslóð 4 út á Granda.
Í ísbúð Omnom fær hugmyndaflugið lausan taum en á boðstólum eru girnilegir og spennandi ísréttir sem helst er hægt að lýsa sem einstakri bragðupplifun mitt á milli deserts á veitingastað og bragðarefs.
Þessa fyrstu viku verður boðið upp á fimm rétti á ísseðlinum og munu bætast við fleiri spennandi og tilraunakenndir réttir eftir tilefnum og stemningu hverju sinni.
Á fyrsta ísseðli Omnom verða til dæmis Gyllti svanurinn sem sveipar njótandann suðrænum blæ, Kolkrabbinn sem sogar sig fastan á bragðlaukana með saltlakkrís og súrpræsi og svo er það sjálfur Ísbjörninn sem sumir eru kannski nægilega hugaðir að prófa.
Kjartan Gíslason súkkulaðigerðarmaður og annar stofnandi Omnom, ásamt sérlegum smökkurum eru búin að liggja yfir gæða hráefnunum og uppskriftum og útkoman er dásamlegar sósur, krem, krömbl og kurl sem þjóna ekki aðeins þeim tilgangi að gleðja gómana heldur einnig augað.
Ísbúð Omnom er til húsa að Hólmaslóð 4 út á Granda og opnunartímar eru:
Þriðjudaga til föstudaga frá kl. 16 til kl. 22
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13 til kl. 22
Mynd: facebook / Omnom
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Áhugavert7 dagar síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Markaðurinn4 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi hæfileikar verðlaunaðir í Eftirrétti ársins og Konfektmola ársins 2026
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFramtíðarkokkar láta ljós sitt skína
-
Frétt3 dagar síðanHraðlestin kveður Hverfisgötu eftir 23 ár



