Smári Valtýr Sæbjörnsson
Fisherman er öflugur ferðaþjónn á Vestfjörðum
- Hér er smakkað á harðfiski frá heimamönnum í matarferð hjá Fisherman
- Þorskur með kókos og tröllasúru
- Steinbítur í pönnuköku
- Gestir í matarferðunum fá mismunandi smakk frá framleiðslu heimamanna
Suðureyri er lítið og skemmtilegt sjávarþorp á Vestfjörðum og í þorpinu er öflugur ferðaþjónn sem heitir Fisherman sem rekur verslun, veitingar og gistihús. Árið 2000 keyptu þau hjónin Jóhanna Þorvarðardóttir og Elías Guðmundsson lítið hús á Suðureyri sem til stóð að rífa. Húsið var endurbyggt sem lítið gistiheimili og um vorið 2001 var tekið á móti fyrsta gestinum. Í gegnum árin hefur reksturinn stækkað jafnt og þétt með því að fjölga herbergjum, breyta gistiheimilinu í hótel, opna veitingahúsið Talisman og síðan var litlum söluskála bætt við reksturinn. Í júní 2013 bætist svo við kaffihúsið Kaupfélag Súgfirðinga ásamt fiskiskóla sem er partur af matarferðum sem er sérsniðin fyrir gesti sem vilja upplifa vistvænt sjávarþorp á rúmum klukkutíma.

Þessi samloka er búin að slá í gegn hjá Fisherman, en þetta er þeirra sjávarþorpsútgáfa af hamborgara sem heitir Plokkfisk-Trilla, Chillibrauð með ost, bearnaissósu og plokkfisk.
Við erum með skyndibita í versluninni, kaffihús í Kaupfélagi Súgfirðinga og a la carte matseðil á sjávarréttaveitingahúsinu Talisman. Þar að auki erum við að selja matarferðir um vistvænt sjávarþorp. Yfirkokkur er Andreas Kellert, en Guðbjartur Einar Sveinbjörnsson hefur verið okkar hægri hönd frá upphafi með flest allar veitingar hjá fyrirtækinu,
.. sagði Elías Guðmundsson framkvæmdastjóri í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um starfsemina hjá Fisherman.
- Veitingastaðurinn Talisman
- Elías sýnir hér handtökin við að elda fisk án orku í Fiskiskóla Fisherman
- Guðbjartur Einar Sveinbjörnsson
- Kaffihúsið
Kaffihúsið var opnað eins og áður sagði í júní 2013 á sjálfum sjómannadaginn og hugmyndin var að þetta yrði skemmtileg viðbót við aðrar veitingar hjá Fisherman yfir sumartímann,
„viðtökurnar hafa verið það góðar að við ætlum prufa að hafa opið áfram og sjá til hvernig viðskiptin þróast í vetur. Það er stór hópur tónlistarnema frá Listaháskóla Íslands núna hjá okkur svo þeir setja mjög skemmtilegan brag á mannlífið hér í þorpinu og síðan er nokkuð bókað í gistingu hjá okkur fram eftir hausti. Haustin og vorin eru alltaf að verða betri en háveturinn er enn sem komið er mjög rólegur. Þetta er bara lítið fjölskyldufyrirtæki sem við höfum verið að byggja upp sl. 13 ár,
… sagði Elías að lokum.
Í meðfylgjandi myndbandi sýnir Vala Matt eina af matarferðunum hjá Fisherman í sumar, en ferðirnar voru einstaklega vel heppnaðar í sumar:
Myndir: af facebook síðu Fisherman.
Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís keppir í Bocuse d´Or í stað Hinriks
-
Keppni4 dagar síðanÍslenskir og hollenskir veitingastaðir í úrslitum á National Fish & Chip Awards 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanBrasa tekur á móti fyrstu gestum í Smáratorgi. Sjáðu stemninguna frá opnunarpartýinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVendoro einfaldar pantanir og samskipti í veitingageiranum: Árni Þór Árnason matreiðslumaður segir frá þróun appsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSmassaður jólaborgari með purusteik og camembert sló í gegn – Myndir
-
Markaðurinn4 dagar síðanParmaskinka á 50% afslætti hjá Stórkaup
-
Markaðurinn3 dagar síðanDesembertilboð fyrir veitingageirann með allt að 45 prósenta afslætti
-
Markaðurinn5 klukkustundir síðanÓska eftir rekstraraðila fyrir 65 herbergja heilsárshótel á landsbyggðinni













