Frétt
Norðanfiski og Fisherman bannað að nota villandi fullyrðingar í markaðssetningu

Neytendasamtökin telja einsýnt að orðnotkunin „vistvænt sjóeldi“ sé afar villandi og í raun ólíðandi refhvörf.
Norðanfiski og Fisherman hefur verið bannað að nota villandi fullyrðingar í markaðssetningu.
Forsaga málsins er sú að Neytendasamtökin fengu ábendingu frá árvökulum félagsmanni um villandi merkingar hjá tveimur fyrirtækjum; Fisherman ehf og Norðanfiski.
Neytendasamtökin telja einsýnt að orðnotkunin „vistvænt sjóeldi“ sé afar villandi og í raun ólíðandi refhvörf. Þannig er sjókvíaeldi beinlínis flokkað sem mengandi iðnaður á vef Umhverfisstofnunar enda fer skólpið sem verður til við framleiðsluna beint í sjóinn. Norska umhverfisstofnunin hefur metið mengunina af hverju tonni í sjókví á við skólp frá 16 manneskjum. Laxar eru t.d. með leyfi fyrir 16.000 tonnum í Reyðarfirði, sem framleiðir þannig skólp á við 256.000 manns. Það getur ekki talist vistvænt, að því er fram kemur á vef Neytendasamtakanna.
Erfðablöndun villtra stofna er að sama skapi afleiðing af sjókvíaeldi. Hún hefur verið staðfest hér rétt eins og í öllum löndum þar sem sjókvíaeldi er stundað. Hér hefur Hafrannsóknarstofnun gefið út „áhættumat erfðablöndunar“. Þar er miðað við að allt að 4% af laxi í ám geti komið úr eldi. Það er í raun sturluð tala, einn af hverjum tuttugu löxum. Það getur ekki talist vistvænt.
Á umbúðum Norðanfisks var fullyrt að um vistvænt sjóeldi væri að ræða. Neytendasamtökin óskuðu eftir upplýsingum frá fyrirtækinu um hvað átt væri við með orðalaginu „vistvænt sjóeldi“ og hvort einhver vottun lægi þar að baki. Í svörum fyrirtækisins kom fram að birgjar þeirra skilgreindu sjálfir sitt eldi sem vistvænt en hefðu enn ekki hlotið neinar vottanir.
Í framhaldinu sendu Neytendasamtökin kvörtun til Neytendastofu og fóru fram á að stofnunin tæki afstöðu til þess hvort orðanotkun Norðanfisks á „vistvænu sjóeldi“ á umbúðum væri villandi í skilningi laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Einnig var send kvörtun vegna fullyrðinga Fisherman ehf sem segir framleiðslu sína vistvæna, umhverfisvæna og sjálfbæra.
Neytendasamtökin sendu jafnframt Neytendastofu ábendingu um villandi umhverfisfullyrðingar í markaðssetningu Fisherman um að fiskurinn þeirra væri framleiddur á umhverfisvænan hátt.
Neytendastofa hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að bæði Norðanfiskur og Fisherman ehf. hafi brotið gegn lögum. Fyrirtækin gátu ekki sýnt fram á að fullyrðingar um vistvænt og sjálfbært laxeldi ættu rétt á sér og væru því villandi.
Neytendasamtökin fagna þessum úrskurðum Neytendastofu sem samtökin telja að setji skýrt fordæmi. Hvetja samtökin félagsmenn og aðra neytendur til árvekni þegar kemur að vafasömum umhverfisfullyrðingum fyrirtækja og grænþvottartilraunum.
Sjá ákvarðanir Neytendastofu gagnvart
Norðanfiski og
Fisherman.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt2 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Frétt4 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanBBQ-hátíð verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi núna um helgina


