Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

SMAG PÅ KUNSTEN 2009 hluti 1; Listin smökkuð til

Birting:

þann

Um nýliðna helgi héldu landsliðsmennirnir Þráinn Freyr Vigfússon, Jóhannes Steinn Jóhannesson, Viktor Örn Andrésson, Ómar Stefánsson og Steinn Óskar Sigurðsson til Árósa í Danmörku til að taka þátt í sýningunni Smag på  kunsten, Bragðað á listinni. Markmið sýningarinnar er að færa hefðbundna listsköpun og matreiðslu saman. Matargerð er jú list og öll listsköpun er undir áhrifum frá annari. Blaðamaður Freistingar gerði sér ferð til Árósa og mælti sér mót við strákana þar sem þeir voru að koma sér fyrir í Tónlistarhúsi Áræsinga, um það bil að hefjast handa við spennandi verkefni.

Landsliðið fékk það verkefni að starfa  með tveimur listamönnum, málara og skúlpturista í tvo tíma og áttu allir að skapa eitthvað á þeim tíma og sækja áhrif hver til annars.  Þannig verður listinn matur, maturinn list og útkoman oft bæði skemmtileg og skrautleg. Strákarnir elduðu sandhverfu og notuðust að auki við garnish frá forréttinum úr galaveislunni sem halda átti um kvöldið en renndu sér að öðruleiti blint í sjóinn með glæsilegri útkomu.

Fleira tengt efni: Af striga á disk

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið