Vertu memm

Eldlinan

Alþjóðleg nemakeppni á Nýja Sjálandi í mars 2006

Birting:

þann

Klúbbur matreiðslumeistara og Menntaskólinn í Kópavogi/Hótel- og matvælaskólinn hafa í framhaldi af undirritun samstarfsamnings ákveðið að senda þátttakanda í alþjóðlega nemakeppni á Nýja Sjálandi.
Keppnin er á vegum Heimssamtaka matreiðslumanna (WACS) í mars, 2006.  Keppnin er kennd við Hans Bueschkens og verður haldin í Auckland University of Technology og er hluti af 32. heimsþingi World Associaton of Cook´s Societies, 2006.

Skráning:
Skráning fer fram þann 28. nóvember til 3. desember í Hótel- og matvælaskólanum.
Umsóknum skal skila til Ragnars Wessmans á þar til gerð eyðublöð (sjá eyðublað hér að neðan).

Undanforkeppni:
Undanforkeppni verður haldin í Hótel- og matvælaskólanum 15. desember frá kl 08:00 til 11:00.
Þátttakendur verða að vera íslenskir ríkisborgarar og mega ekki vera eldri en 23 ára þann 12. mars 2006.
Í undanforkeppni fá þátttakendur sýniskörfu með hráefni, þeir þurfa síðan að búa til matseðil út frá henni.
Þátttakandi fær tvær klst. til að klára verkefnið.  Matseðlinum þarf að skila á ensku og íslensku ásamt uppskriftum og vinnulýsingu á þeim.
Fimm dómarar velja úr þessum hóp fimm keppendur í hina eiginlegu forkeppni.

Forkeppni, keppnisreglur:
Forkeppnin verður síðan haldin samhliða forkeppni fyrir matreiðslumann ársins í byrjun janúar 2006.
Keppnisformið er í formi blindverkefnis (mystery basket).
Hver keppandi undirbýr þriggja rétta málsverð fyrir sex manns.
Fjórir diskar fara til gesta, einn diskur til dómara og einn í myndatöku.
Matseðillinn samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti.
Viðeigandi sósa og sterkja s.s. karftöflur eða hrísgrjón skulu fylgja aðalrétti og minnst tvær tegundir af grænmeti.
Sigurvegari mun fara til Nýja Sjálands ásamt þjálfara  og taka þátt í alþjóðlegri nemakeppni.

Almennar reglur:
Keppandi mætir í til keppni viðeigandi einkennisfatnaði sem er hvítur jakki, köflóttar eða svartar buxur, hvít húfa, hvít svunta og heilir vinnuskór (ekki opnir).

Dómarar:
Dómarahópurinn samanstendur af tveimur dómurum sem dæma hráefnismeðferð og aðferðafræði og tveimur dómurum sem dæma bragð.  Næringarfræðingur mun aðstoða dómara við að meta næringarfræilegar áherslur réttanna.

Hjálpargögn:
Þátttakendur mega hafa með sér hjálpargögn eins og uppskriftir og matreiðslubækur.

Tímasetningar:
Heildarkeppnistími er þrjár og hálf (3 1/2) klst.

Áhöld og tæki:
Hverjum keppanda er úthlutað vinnustöð fyrir keppnina.  Í eldhúsunum eru öll hefðbundin eldhústæki.  Keppandi getur haft með sér sértæk hand- og rafmagnsverkfæri s.s. form, litlar matvinnsluvélar, töfrasprotar og annað það sem hann telur sig þurfa að nota.
Ætlast er til að keppendur noti þá diska sem er að finna í Hótel- og matvælaskólanum.

Skyldur þátttakanda:
Þátttakndi tekur þátt í pallborðsumræðum á þinginu á Nýja-Sjálandi. 
Þar kynnir hann land sitt og afurðir þess.
Nemandinn sem er valinn til ferðarinnar þarf að skrifa ritgerð um undirbúning, framkvæmd og upplifun í keppninni og kynna hana fyrir nemendur Hótel- og matvælaskólans þegar heim er komið.

 

—————————–

 

Alþjóðleg nemakeppni á Nýja Sjálandi í mars 2006

Umsóknareyðublað

 

Nafn þátttakanda:

______________________________________________________

 

Sími:

______________________________________________________

 

Fæðingardagur og ár:

______________________________________________________

 

Meistari:

______________________________________________________

 

Námstaður:

______________________________________________________

 

Vinnusími:

______________________________________________________

 

Með umsókninni skal fylgja skriflegt leyfi meistara fyrir þátttöku og ljósmynd af keppanda.

 

Annað sem þú vilt taka fram:

______________________________________________________

______________________________________________________

______________________________________________________

______________________________________________________

______________________________________________________

______________________________________________________

 

Greint frá á nemandasíðunni

[email protected]

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið