Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Veitingastaður og kaffitería Perlunnar hættir starfsemi um áramótin | Kaffitár kemur í staðinn

Veitingahús Perlunnar hefur verið einn vinsælasti veitingastaður Reykjavíkur. Í Perlunni hafa starfað fjölmargir fagmenn sem eru fastir gestir í Kokkalandsliði Íslands, unnið til fjölda verðlauna, ásamt því að matreiðslumenn Perlunnar hafa verið meðlimir í Club des Chefs des Chefs, sem er klúbbur matreiðslumeistara sem elda fyrir forseta og fyrirmenni þjóða sinna. (Texti: Perlan.is)
Mynd úr safni: Guðjón Þór Steinsson
Veitingastaður og kaffitería Perlunnar munu hætta starfsemi um áramótin og mun Kaffitár koma í staðinn, en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Kristbjörg Edda Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs, segir í samtali við mbl.is að á nýja staðnum verði bæði hægt að fá úrvals kaffi og veitingar framleiddar af Kruðeríi Kaffitárs. Nánari umfjöllun er hægt að lesa með því að smella hér.
Vegleg sýning á náttúru Íslands í Perlunni
Breytingarnar tengjast fyrirhugaðri náttúrusýningu í Perlunni en fyrsti áfangi hennar opnar á vormánuðum næsta árs.
Í fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar segir að Vegleg sýning á náttúru Íslands verður sett upp í Perlunni í Öskjuhlíð en fyrirtækið Perla norðursins hefur lagt fram ítarlegar og vel útfærðar hugmyndir um slíka sýningu í húsinu.
Það var í mars s.l. sem að Borgarráð lét skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg að ganga til samninga við Perlu norðursins ehf um leigu á Perlunni. Auglýst var eftir áhugasömum aðilum um rekstur á náttúrusýningu í Perlunni og var tilboð Perlu norðursins það eina sem barst en skilafrestur rann út 22. febrúar sl.
Dómnefnd, sem skipuð var til að meta umsóknirnar, taldi umsóknina uppfylla öll skilyrði sem sett voru fram. Dómnefndin tók fram að í viðræðunum verði sérstaklega hugað að fræðsluhlutverki sýningarinnar og tengslum við skóla og sér í lagi heimsóknum frá skólum Reykjavíkurborgar. Einnig að skoðuð verði möguleg aðkoma borgarinnar í gegnum Menningarkortið (Reykjavik City Card) og að tryggt verði að staðið verði við metnaðarfull áform um náttúrusýningu sem byggir á nýjustu og bestu þekkingu á sviði náttúrufræða og styrk tengsl við fræðaheiminn.
Allt frá því að Reykjavíkurborg keypti Perluna af Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið unnið að því að finna húsinu verðugt hlutverk með það að leiðarljósi að Perlan verði áfram aðgengileg almenningi og hluti af Öskjuhlíðinni. M.a. var skrifað undir leigusamning við ríkið um að koma upp sýningu á náttúru Íslands í húsinu. Sá leigusamningur fékk hins vegar ekki formlega staðfestingu. Eftir að sýnt þótti að ríkið mundi ekki taka þátt í sýningu á náttúru Íslands í Perlunni var ákveðið að auglýsa húsið til leigu.
Perla norðursins ehf. var stofnað á árinu 2015. Markmið félagsins er að setja upp metnaðarfulla náttúrusýningu í Perlunni fyrir Íslendinga og ferðamenn. Áætlað er að stofnkostnaður sýningarinnar verði um 1.550 milljónir kr. án vsk. Hluthafar í Perlu norðursins ehf. eru Landsbréf/ITF1, Perluvinir ehf. og Saltland ehf & Lappland ehf.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn7 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn2 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSticks’n’Sushi fór yfir 18 milljarða króna í veltu



