Frétt
Söguleg stund: Síðustu kaffibaunirnar brenndar á Akureyri
Kaffibrennslu í húsnæði Nýju kaffibrennslunnar á Akureyri er nú lokið eftir nærri heila öld af starfsemi. Síðasti skammturinn af kaffibaunum hefur verið brenndur og þar með lauk yfir 90 ára sögu kaffibrennslu í bænum.
Íbúar Akureyrar hafa löngum vanist anganinni sem lagðist yfir hverfið frá Tryggvabrautinni, þar sem kaffibaunir fyrir vinsælar vörur eins og Braga-kaffi og Rúbín-kaffi hafa verið brenndar síðan árið 1957.
Saga kaffibrennslu á Akureyri nær þó enn lengra aftur. Kaffibrennsla Stefáns Árnasonar hóf starfsemi í miðbænum árið 1931 og hefur síðan gengið í gegnum samruna og eigendaskipti. Í dag er starfsemin rekin undir merkjum Kaffitárs.
Sjá einnig: Nýja Kaffibrennslan kaupir Kaffitár
Þrátt fyrir að kaffi hafi verið brennt á Akureyri allar götur síðan, er nú fyrirhugað að flytja brennsluofninn til Njarðvíkur, þar sem framleiðslan mun halda áfram.
Hægt er að sjá innslag um lok kaffibrennslunnar í fréttum RÚV.
Mynd: kbr.is
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn1 dagur síðanLíður að jólum
-
Pistlar21 klukkustund síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




