Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Nýtt hótel við Norðurljósaveg 2 í Garði

Birting:

þann

Hótel við Norðurljósaveg 2 í Garði

Framkvæmdir eru hafnar

Fyrirtækið GSE sækir um byggingarleyfi fyrir hótel við Norðurljósaveg 2 í Garði. Með umsókninni fylgir einnig bréf umsækjenda með ósk um ívilnanir o.fl. í fjórum liðum.

Skipulags- og byggingarnefnd í Garðinum samþykkir fyrirhuguð byggingaráform með fjórum atkvæðum. Bjarki Ásgeirsson bæjarfulltrúi sveitarfélagsins situr hjá þar sem hann telur að byggingin nái ekki markmiðum skipulagsins um að falla vel að umhverfi sínu og endurspegla aðliggjandi búsetulandslag og náttúrufar. Byggingarfulltrúa er falið að undirbúa útgáfu byggingarleyfis.

Varðandi meðfylgjandi bréf umsækjanda leggur nefndin til að lið 1, 2 og 4 verði vísað til afgreiðslu bæjarráðs en byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá útfærslu á lið 3 í samráði við umsækjanda við útgáfu byggingarleyfis.

Í lið 1 er óskað eftir að gatnagerðargjald verði greitt þegar húsið verður fokhelt.  Þessi liður var samþykkt samhljóða á bæjarráðsfundi í Garði að veita bæjarstjóra heimild til að ganga frá samningi við lóðarhafa um að gatnagerðargjald verði greitt að fullu við útgáfu fokheldisvottorðs, enda eru því fordæmi hjá sveitarfélaginu. Lóðarhafi leggi fram fullnægjandi tryggingu fyrir greiðslum.

Norðurljósavegur 2 í Garði

Liður 2 er ósk um afslátt af gatnagerðargjöldum á forsendu atvinnuskapandi starfsemi.  Samþykkt samhljóða að hafna erindinu. Bæjarráð telur að ekki séu forsendur fyrir afslætti af gatnagerðargjöldum sem samræmast heimildum í lögum og reglugerð sveitarfélagsins um gatnagerðargjöld. Um væri að ræða sértæka ívilnun sem hefur fordæmisgildi hvað varðar aðra atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu Lóðinni var úthlutað í desember 2015 og þá lá ekki fyrir ósk frá lóðarhafa um afslátt af gjöldum. Samþykkt þessa afsláttar gæti haft í för með sér afturvirka afslætti sem hefði fjárhagslegar afleiðingar í för með sér fyrir sveitarfélagið.

Bæjarráð bendir á að ekki séu sambærileg fordæmi fyrir afsláttum slíkra gjalda í sveitarfélaginu og bæjarstjórn hefur ekki fjallað um eða samþykkt að veita almenna afslætti af íbúðar-eða atvinnulóðum í sveitarfélaginu. Því er ekki hægt að veita sértæka afslætti sem hefur fordæmisgildi, án þess að umræða um almenna afslætti hafi farið fram í bæjarstjórn.

Að lokum í lið 4 er óskað eftir gjaldfrjálsa lóðarleigu í þrjú ár frá því fyrirtækið hefur starfsemi.

Samþykkt samhljóða að hafna erindinu, á sömu forsendum og vegna liðar 2 í erindinu.

Fundargerð bæjarráðs í Sveitafélaginu í Garði er hægt að nálgast með því að smella hér.

 

Mynd: Smári

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss Lagersala - Stórkaup

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið