Frétt
Innihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja við einni lotu af Krónu pylsum. Ein lota af vörunni fór á markað án innihaldslista. Varan inniheldur sojaprótein sem kemur ekki fram á umbúðum hennar. Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, hefur innkallað vöruna.
Eftirfarandi framleiðslulota eru innkölluð:
- Vörumerki: Krónan
- Vöruheiti: Pylsur 10 stk
- Framleiðandi: Kjarnafæði Norðlenska fyrir Krónuna
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer: 758-26210-2
- Síðasti notkunardagur: 27.08.2026
- Geymsluskilyrði: Kælivar
- Dreifing: Verslanir Krónunnar
Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja skulu ekki neyta vörunnar heldur farga eða skila í verslun til að fá endurgreiðslu.
Mynd: mast.is
-
Markaðurinn6 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn6 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn6 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni2 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni2 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




