Vertu memm

Bocuse d´Or

Viktor Örn Andrésson verður næsti Bocuse d´Or kandídat

Birting:

þann

Viktor Örn Andrésson

Viktor Örn Andrésson

Viktor Örn Andrésson, Matreiðslumaður ársins 2013 og Matreiðslumaður Norðurlanda 2014, hefur nú hafið undirbúning fyrir þátttöku í Bocuse d‘Or, sem er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.  Hann hefur nú sagt starfi sínu sem  yfirmatreiðslumaður Lava Restaurant í Bláa lóninu lausu til að einbeita sér að verkefninu, að því er fram kemur á vef Viðskiptablaðsins.

Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 og komast færri þjóðir að en vilja.  Tuttugu og fjórar þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa unnið forkeppni í sinni heimsálfu, og fimm  efstu sætin í sjálfri keppninni tryggja þeim þjóðum sjálfkrafa keppnisrétt næst.

Íslendingar hafa tekið þátt í Bocuse D‘Or undanfarin fimm skipti, frá 1999,  með vægast sagt glæsilegum árangri. Við höfum alltaf verið í topp níu af 24 þjóðum á heimsmeistaramótinu og hæst náð þriðja sæti. Tölfræðin sýnir að við erum nú meðal sex bestu þjóða  heims  á  sviði  matreiðslu.  Það er mér mikill heiður að fá að taka þátt í svona stórri og mikilvægri keppni og mjög gaman að fá að keppa við stóru strákana í faginu. Það er eitthvað sem maður býr að alla ævi,

segir Viktor í samtali við Viðskiptablaðið fullur tilhlökkunar.

Nú eru sjö mánuðir í keppnina og tíminn verður nýttur vel. Mitt markmið er að ná topp fimm í Evrópukeppninni í Búdapest í maí 2016, og síðan að lenda á palli í heimsmeistarakeppninni í Lyon í janúar 2017. Þetta leggst gríðarlega vel í mig.

Viktor Örn Andrésson er í viðtali í Eftir vinnu, fylgiriti Viðskiptablaðsins, sem kom út nú í vikunni.

Mynd: aðsend

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið