Markaðurinn
Fastagesturinn verður sífellt mikilvægari
Baráttan um gestinn endar ekki þegar hann gengur inn um dyrnar. Fyrir veitingastaði verður sífellt mikilvægara að breyta góðri heimsókn í þá næstu, og helst í fastagest.
RUB23, Sjávargrillið, SÓL, Reykjavík Roasters og Maikai eiga eitt sameiginlegt: Staðirnir hafa allir tekið stafræn klippikort Dineout í notkun.
Útfærslurnar eru jafn ólíkar og staðirnir sjálfir. RUB23 hefur sett sitt vinsæla hádegishlaðborð á klippikort og á Sjávargrillinu geta gestir nýtt kortið í rétt eða fisk dagsins. Reykjavik Roasters bjóða upp á kaffiklippikort og sömuleiðis Maikai hefur útbúið sérstök kort fyrir bæði matcha-drykki og skálar.
Þetta sýnir vel hversu ólíkt veitingastaðir geta nýtt sömu hugmynd á meðan markmiðið er alltaf það sama: Að skapa ástæðu fyrir næstu heimsókn.
Með lausn Dineout er klippikortið stafrænt og fer beint í Apple Wallet eða Google Wallet í síma gestsins. Engin sérstök öpp eða pappakort sem týnast, gesturinn hefur kortið alltaf á sér í símanum.
Fyrir veitingastaði snýst þetta þó um meira en þægindin. Klippikortið gefur gestum hvata til að velja sama stað aftur, á sama tíma og veitingastaðurinn fær tækifæri til að byggja upp tryggð við viðskiptavininn.
„Við tölum mikið um hvernig við fáum nýja gesti inn um dyrnar, en ekki alltaf jafn mikið um hvernig við fáum þá til að koma aftur.
Þar liggur gríðarlegt tækifæri fyrir veitingastaði. Klippikortin eru einföld leið til að breyta fleiri góðum heimsóknum í endurkomur og það er virkilega gaman að sjá hversu ólíkt staðirnir eru þegar farnir að nýta þau,“
segir Embla Hallfríðardóttir, deildarstjóri sölu hjá Dineout.
Það sem hefur verið sérstaklega áhugavert frá því að Dineout hóf að bjóða klippikortin er hversu ólíkar útfærslurnar hafa orðið. Kaffi, matcha, skálar, bjór og sushi eru þegar komin á kort og fleiri veitingastaðir eru að undirbúa sínar eigin útfærslur
Hugmyndin er ekki að allir staðir bjóði upp á sama tryggðarkerfið. Þvert á móti getur hver veitingastaður byggt klippikortið í kringum þær vörur og heimsóknir sem hann vill sjá meira af. Hópurinn heldur áfram að stækka og fleiri veitingastaðir eru þegar að undirbúa sín klippikort hjá Dineout
Þú getur skoðað klippikortaveröld Dineout hér.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt3 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn8 klukkustundir síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni





