Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Obo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði

Birting:

þann

Nýr veitingastaður, Obo diner, mun opna á næstunni að Fagradalsbraut 13 á Egilsstöðum. Staðurinn verður rekinn undir slagorðinu American Diner × Asian Fusion og leggur áherslu á að sameina bandaríska matsölustaðamenningu og asísk áhrif í matargerð sinni.

Á kynningarsíðu staðarins segir að markmiðið sé að bjóða upp á góðan mat, hlýlegar móttökur og skapa stað sem gestir vilji heimsækja aftur og aftur.

Obo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði

Húsnæðið að Fagradalsbraut 13 er mörgum vel kunnugt. Þar opnaði Skálinn Diner í maí 2018 en áður hafði Shell-skálinn verið starfræktur á sama stað. Í gegnum árin hefur staðurinn verið vinsæll viðkomustaður ferðalanga og heimamanna.

Með opnun Obo diner fær húsnæðið nýtt nafn, nýja ásýnd og breytta áherslu í matseðli, þar sem bandarískir réttir og asísk matargerð verða í forgrunni.  Opnunardagur hefur ekki enn verið kynntur.

Myndir: Facebook / OBO diner

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið