Markaðurinn
Innnes gerir breytingar á vefverslun og greiðsluferli
Við viljum upplýsa um breytingar á vefverslun Innnes sem taka gildi mánudaginn 22. júní næstkomandi. Markmið breytingana er að einfalda, bæta öryggi og auka skilvirkni í afgreiðslu pantana.
Staðgreiðsluviðskipti
Fyrir viðskiptavini sem eru í staðgreiðslu á viðskiptareikning er það framvegis eingöngu í boði gegn því að gilt greiðslukort (debet/kredit) sé skráð á viðskiptareikninginn. Skrá þarf greiðslukort undir Mínar síður > Bókhald > Greiðsluupplýsingar.
Úttektarheimild tengist sölu
Úttektarheimild verður sýnileg á sama stað og greiðsluupplýsingar undir Mínar síður https://innnes.is/minar-sidur/bokhald/greidsluupplysingar/
Úttektarheimild viðskiptavinar verður framvegis tengd beint við pöntunarferli í vefverslun. Fari pöntun yfir samþykkta úttektarheimild fer pöntunin ekki í gegn.
Yfirlit yfir reikninga og afrit, greiðsluseðla og hreyfingayfirlit má nálgast á Mínar síður > Bókhald.
Ef pöntun stöðvast
Ef pöntun stöðvast sökum þess að farið er yfir úttektarheimild, er hægt að greiða eldri greiðsluseðla í heimabanka. Úttektarheimild virkjast sjálfkrafa þegar greiðsla hefur verið framkvæmd og viðskipti geta haldið áfram.
Til viðbótar við greiðslur á eldri greiðsluseðlum verður boðið upp á greiðslu stakra pantana með greiðslukorti, ef þess þarf.
Við hjá Innnes teljum að ofangreindar breytingar stuðli að betri þjónustu, skilvirkari og hraðari afgreiðslu pantana. Ef spurningar vakna eru starfsmenn Innnes ávallt tilbúnir að aðstoða.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn1 dagur síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði




