Vín, drykkir og keppni
Verðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
Nú er nýlokin keppnin um Gyllta Glasið 2026 sem var er undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.490 kr til 5.000 kr og völdu vínbirgjar vínin til í þessa keppni. Í þessum fyrri parti voru vín frá suður við miðbaug tekinn fyrir ásamt Norður Ameríku ásamt sérstökum rósavínsflokki, en þar var ekkert verðþak og máttu vínin koma hvaðan sem er úr heiminum, þurftu bara vera árgangsmerkt.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Natura 3.maí sl. og eigum við í Vínþjónasamtökunum þeirra allra bestu þakkir fyrir aðstoðina.
Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.
5 hvítvín, 10 rauðvín og 4 rósavín hlutu Gyllta glasið 2026 samkvæmt hlutföllum sem skiluðu sér. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Verðlaunavínin
Hvítvín:
Invivo X, SJP Sauvignon Blanc 2024, 3.399 kr
Villa Maria Private Bin Sauvignon Blanc 2024, 3.199 kr
Matua Sauvignon Blanc 2023, 2.899 kr
Penfolds Koonunga Hill 2024, 2.999 kr
Escudo Rojo Gran Reserva Chardonnay 2022, 3þ299 kr
Rósavín:
La Vielle Ferme Rosé 2025, 2.690 kr
Invivo X SJP Rose, 2025, 2.999 kr
This Life Rosé 2024, 2.999 kr
Tormaresca Néprica Rosé 2025, 2.899 kr
Rauðvín:
MacMurray Russian River Valley Pinot Noir 2021, 4.998 kr
Nederburg The Winemaster Cabernet Sauvignon 2022, 2.699 kr
Peter Lehmann Portrait Cabernet Sauvignon 2022, 3.498 kr
Santa Rita 120 Cabernet Sauvignon Reserva Especial 2024, 2.699 kr
Nederburg The Winemaster Cabernet Sauvignon 2024, 2.699 kr
Trivento Cabernet Sauvignon Reserve 2024, 2.699 kr
Fairview Back’s Blend Red 2024, 3.090 kr
Trapiche Gran Medalla Malbec 2023, 4.299 kr
Trapiche Oak Cask Malbec 2024, 2.499 kr
Catena Malbec 2024, 3.189 kr
Vínþjónasamtökin vilja þakka sérstaklega öllum dómurum og birgjum fyrir frábæra þáttöku og óskum við sigurvegurum til hamingju.
f.h. Vínþjónasamtaka Íslands
Tolli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Markaðurinn1 dagur síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMet slegið í London: Risastór tiramisu mældist yfir 440 metrar – Vídeó
-
Markaðurinn2 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Starfsmannavelta6 klukkustundir síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur





