Keppni
Kría sigrar með Daydream og tryggir Íslandi sæti í Porto
Stemningin var rafmögnuð þegar Graham’s Blend Series kokteilakeppnin fór fram á Jungle í gær. Globus og Barþjónaklúbbur Íslands halda utan um skipulagningu keppninnar hérlendis.
10 framúrskarandi barþjónar sem komust áfram í úrslit öttu kappi og var samkeppnin afar hörð. Í dómnefnd sátu Nuno Silva frá Symington Family Estates sem er eigandi Graham’s, Alba E H Hough vínsérfræðingur, Jakob Alf Arnarson sigurvegari Graham’s Blend Series 2024 og Grétar Matthíasson þrefaldur Íslandsmeistari í kokteilagerð.
Í húfi var ekki aðeins glæsileg verðlaun í fljótandi formi og glæsilegur eignabikar heldur einnig sæti í alþjóðlegum úrslitum í Porto í maí, þar sem sigurvegari Íslands mun keppa við nokkra bestu barþjóna heims.
Verðlaunahafar kvöldsins:
1. sæti – Kría Freysdóttir á Tres Locos með kokteilinn Daydream
2. sæti – Ísar Bjarki Hinriksson á Sushi Social með kokteilinn Douro Dusk
3. sæti – George Cazacu á Daisy með kokteilinn Pear & Compass
Einnig hlutu 1. og 2. sæti 4,5 lítra flösku af Graham’s Tawny 10 ára og 3. sæti fékk kassa af Graham’s Blend Nº12 Ruby.
Globus og Barþjónaklúbburinn þakkar Jungle fyrir frábært samstarf, keppendum fyrir metnaðinn og öllum gestum sem lögðu sitt af mörkum til að gera kvöldið ógleymanlegt.
Um Graham’s Blend Series portvínin
Graham’s Blend Nº5 White er fyrsta hvíta portvín Graham’s sem hannað er sérstaklega til blöndunar í kokteila. Það nýtur sín einstaklega vel með Tonic eða einfaldlega kælt eitt og sér. Vínið er létt, líflegt og ávaxtaríkt sem er ferskari nálgun á hefðbundið hvítt port.
Graham’s Blend Nº12 Ruby er fyrsta rauða portvín Graham’s sem sérstaklega er þróað til blöndunar. Það hentar vel í spritz-útgáfur og aðra nútímalega kokteila. Vínið er ferskara og arómatískara en hefðbundið Ruby-portvín, gerjað við lægra hitastig og vínberin tínd að kvöldlagi í hæstu víngörðum Douro-dalsins til að varðveita ferskleika og ávaxta eðli.
Douro-dalurinn í norðurhluta Portúgal er eitt fegursta víngerðarhérað heims, þekktast fyrir framleiðslu á styrktum vínum, þá hinum heimsfrægu portvínum.
Meðfylgjandi eru myndir frá keppninni í gær og ljósmyndari er Þorgeir Ólafsson.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju

















