Viðtöl, örfréttir & frumraun
Íslensk matargerð í sviðsljósinu í Barcelona
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global í Barcelona á Spáni stendur yfir dagana 21. – 23. apríl. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða en skipuleggjendur segja að fyrirtæki frá um níutíu þjóðlöndum kynni þar vörur sínar, búnað og þjónustu í samtals níu stórum sýningarhöllum.
Samherji og Ice Fresh Seafood eru að venju með stóran bás á sýningunni, þar sem tekið er á móti gestum frá öllum heimsálfum og afurðir kynntar. Ice Fresh Seafood er dótturfélag Samherja og sér um að selja afurðir félagsins og fleiri fyrirtækja.
Unnur Inga Kristinsdóttir sölustjóri hjá Ice Fresh Seafood er stödd í Barcelona. Hún segir að básinn sé þétt setinn og þrátt fyrir langa daga og þétt skipaða fundardagskrá, þá sé mikil stemming á básnum.
„Þessi sýning er afskaplega mikilvæg í okkar starfi. Hérna hittir maður samstarfsfélaga og viðskiptavini alls staðar að úr heiminum og saman myndum við einstaka stemmingu svo eftir er tekið. Við mætum hingað árlega, vel undirbúið samheldið teymi.
Markmiðið er að efla okkur enn frekar, hámarka verðmætasköpun, styrkja núverandi viðskiptasambönd og jafnframt að skapa ný tækifæri. Básinn okkar er glæsilegur og vel búinn með fundaraðstöðu og veitingar á tveimur hæðum.
Kokkurinn töfrar fram framúrskarandi rétti úr okkar besta hráefni, sem við bjóðum stolt gestum okkar.“
Veitingar á heimsmælikvarða
Eins og fyrr segir er bás Samherja og Ice Fresh Seafood stór og vel búinn. Einar Geirsson matreiðslumeistari og eigandi veitingastaðarins RUB 23 á Akureyri hefur í tvo áratugi haft yfirumsjón með matreiðslu á básum Samherja og Ice Fresh Seafood um víða veröld.
„ Það breytist ekkert, Einar og hans áhöfn hafa skapað sér gott orðspor hérna. Við sækjum okkar veitingar heim í hérað ef svo má segja, en allur fiskur sem við bjóðum uppá er okkar eigin afurð, bjórinn er frá Bruggsmiðjunni Kalda á Árskógssandi, harðfiskur frá Darra á Grenivík, íslenskt vatn, súkkulaði og fleira.
Ég held að óhætt sé að fullyrða að á okkar bás sé að finna bestu veitingar sem boðið er uppá á hérna á sýningunni og eru veitingastaðirnir þó margir frábærir og spennandi. Það er gaman að vera hluti af þessum einvala hópi fólks sem setur markmiðið hátt og hlakka ég mikið til næstu daga,“
segir Unnur Inga Kristinsdóttir sölustjóri hjá Ice Fresh Seafood.
Myndir og heimild: Samherji
-
Íslandsmót barþjóna6 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun20 klukkustundir síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Markaðurinn6 dagar síðanPistasíu- og sítrónukaka sem bráðnar í munni







