Vertu memm

Keppni

Brons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu

Birting:

þann

Íslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð

Bæði lið Íslands í norrænu nemakeppninni, sem haldin var í Grythyttan í Svíþjóð, komust á pall að þessu sinni en keppendur Íslands komu vel undirbúnir til leiks, sem skilaði sér í því að bæði liðin í framreiðslu og matreiðslu unnu til bronsverðlauna.

Keppnin var gríðarlega hörð í þetta skiptið en Finnar sigruðu í framreiðslu og Danir sigruðu í matreiðslu.

Keppendur fyrir íslandshönd voru Aron Fannar Þrastarson og Hákon Orri Stefánsson í matreiðslu en Aron starfar hjá Nomy veisluþjónustu og Lóla Restaurant en Hákon starfar hjá Fröken Reykjavík, báðir stefna á að klára sveinspróf í matreiðslu nú í maí.

Í framreiðslu kepptu Árný Lind Berglindardóttir, en hún starfar á veitingahúsinu Kol, og Freyja Dröfn Bjarnadóttir, sem starfar á veitingahúsinu OTO en þær eins og strákarnir stefna á að klára sveinspróf nú í maí mánuði.

Íslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð

Keppnin í ár var sú 45. í röðinni en Ísland hefur tekið þátt síðan 1986, margir af bestu matreiðslumeisturum Norðurlandanna hafa hafið sinn feril í þessari keppni. Keppendur koma frá norðurlöndunum fimm en öll löndin senda tvo framreiðslunema og tvo matreiðslunema studda af liðstjórum. Forkeppni á Íslandi fór fram í Hótel og Matvælaskólanum í Kópavogi í nóvember síðastliðnum.

Keppnin á Íslandi er haldin á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og Matvís en Klúbbur matreiðslumeistara sér um framkvæmdina fyrir þeirra hönd.

Undir þema ársins, framtíðargestrisni, gerðu matreiðslunemarnir nútímalega túlkun á kálbögglum og sömdu fjórganga matseðil byggðan á leyndum hráefnum úr mystery basket.

Framreiðslunemarnir kepptu í þjónustu, þar sem fram var borin fimm rétta máltíð ásamt vínpörun, þar sem eftirétturinn var eldsteiktur fram í sal.

Sigurvegarar

Framreiðsla

1. sæti — Finnland

2. sæti — Danmörk

3. sæti — Ísland

Matreiðsla

1. sæti — Danmörk

2. sæti — Svíþjóð

3. sæti — Ísland

Myndband:

Myndir: Mummi Lú

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið