Markaðurinn
Mata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
Mata hf. hefur tekið við dreifingu á Nordic Wasabi frá Jurt ehf. Samstarfið er þegar komið til framkvæmda og varan nú aðgengileg í gegnum dreifikerfi Mata hf.
Nordic Wasabi er íslenskt hágæða wasabi, ræktað í hátæknigróðurhúsum á Egilsstöðum með sjálfbærri vatnsræktun. Framleiðslan er rekin samkvæmt New Nordic Food Manifesto þar sem ferskleiki, hreinleiki og sjálfbærni eru höfuðatriði. Ólíkt því „wasabi“ sem flestir þekkja, sem er að jafnaði blanda af piparrót, sinnep og grænum matarlit, er Nordic Wasabi alvöru wasabi, ferskt og óblandað.
„Nordic Wasabi passar vel inn í vöruúrval okkar og við hlökkum til að kynna vöruna fyrir viðskiptavinum okkar.“
sagði Jóhann Steinn Eggertsson, framkvæmdastjóri Mata hf.
„Við erum ánægð með að eiga Mata hf. sem dreifingaraðila og hlökkum til góðs samstarfs,“
sagði Ragnar Atli Tómasson, CEO Jurt ehf.
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni6 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt7 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt3 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt2 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð



