Markaðurinn
ÓJ&K – ÍSAM opnar nýja vefverslun fyrir viðskiptavini
ÓJ&K – ÍSAM hefur opnað nýja og endurbætta vefverslun sem ætlað er að gera pantanir einfaldari og þægilegri fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Með nýju lausninni er markmiðið að bæta þjónustu, auka öryggi og gera viðskiptavinum kleift að sinna pöntunum á skilvirkari hátt.
Í tengslum við opnunina hefur verið tekin upp rafræn auðkenning til að styrkja öryggi kerfisins. Af þeirri ástæðu þurfa allir viðskiptavinir að sækja um aðgang að vefversluninni á ný, jafnvel þótt þeir hafi áður haft aðgang að eldri lausn.
Dregið um PING golfsett
Til að fagna opnuninni verður dregið úr hópi þeirra sem skrá sig í nýju vefverslunina fyrir 20. apríl. Einn heppinn þátttakandi hlýtur glæsilegt PING golfsett sem nýtist vel þegar sumarið gengur í garð.
Viðskiptavinir geta sótt um aðgang að nýju vefversluninni á vef ÓJ&K – ÍSAM. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða hafa spurningar geta haft samband með tölvupósti á [email protected] eða í síma 535-4000.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMichelin hættir með grænu stjörnuna
-
Starfsmannavelta1 dagur síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Frétt4 dagar síðanMatvælastofnun varar við neyslu á frosnum nautamaga
-
Frétt1 dagur síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
-
Markaðurinn4 dagar síðanSH-41 handsápa fyrir matvælaiðnað nú Svansvottuð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki og aðstoðarfólki í eldhús



