Keppni
Barþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun
English below!
Kokteilakeppnin DUBLIN MEETS REYKJAVÍK er fram undan. Endurtekið er leikurinn frá því í fyrra þegar Jameson kokteilakeppnin vakti verðskuldaða athygli innan greinarinnar og nú er aftur kallað eftir hugmyndaríkum og metnaðarfullum barþjónum sem vilja láta ljós sitt skína.
Í brennidepli er Jameson, silkimjúkt þríeimað írskt viskí sem hefur skipað sér fastan sess á börum landsins. Viskíið þykir einstaklega hentugt í kokteila, jafnt í klassískum uppskriftum sem og nýjum og óvæntum útfærslum. Keppendur eru hvattir til að senda inn sinn besta Jameson kokteil og takast á við áskorunina með frjálsu þema að leiðarljósi.
Það er Barþjónaklúbbur Íslands sem á veg og vanda af undirbúningi keppninnar.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu sætin. Þar má nefna ferð til Dublin á Írlandi, VIP aðgang að Jameson Distillery Bow St., glæsilegar Jameson vörur, eignabikar og fleira sem gleður bæði fagmenn og áhugafólk um kokteilamenningu.
Reglur keppninnar eru skýrar. Nota skal að lágmarki 3 sentilítra af Jameson viskíi í drykknum og skila inn uppskrift eigi síðar en 1. mars. Skráningarfrestur rennur út sama dag og þátttakendur þurfa að fylla út skráningarform til að tryggja sér sæti. Walk around dómnefnd verður á ferðinni þriðjudaginn 3. mars og tíu keppendur komast áfram í úrslit sem haldin verða fimmtudaginn 5. mars.
Metnaður, fagmennska og sköpunargleði verða í forgrunni þegar Dublin mætir Reykjavík í glasi. Eins og skipuleggjendur orða það sjálfir, við hristum Jameson allan daginn út og inn.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt3 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt3 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt2 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax



