Markaðurinn
Ómótstæðileg kanilskúffukaka með mjúku kaffikremi
Hver elskar ekki skúffukökur?
Þessi er afar hjartahlýjandi og dásamleg með einstöku kanilbragði og örlitlum kaffikeim. Jógúrt gerir kökuna mjúka og bragðgóða en ef þið viljið enn meira kaffibragð mætti skipta því út fyrir Óskajógúrt með kaffi. Njótið vel.
Skúffukaka:
5 dl hveiti
4 dl sykur
1 tsk. kanill
2 msk. kakó
½ tsk. salt
1 tsk. matarsódi
1 tsk. lyftiduft
2 dósir Óskajógúrt með hnetum og karamellu
2 egg
2 dl mjólk
2 tsk. vanilluextrakt
150 g smjör, brætt
Á milli:
3 matskeiðar sykur
2 tsk. kanill
Krem:
250 g flórsykur
2 msk. kakó
75 gr brætt smjör
4-5 msk. heitt sterkt kaffi
1 tsk vanilluextrakt
Smá klípa sjávarsalt
Aðferð:
Hitið ofn í 170 gráður með blæstri.
Hrærið öllum þurrefnum saman í skál.
Pískið saman jógúrti, eggjum, mjólk og vanillu og hellið út í deigið. Bætið að lokum bræddu smjöri saman við og blandið vel saman.
Hellið helmingnum af deiginu í skúffukökuform , stráið kanilsykrinum á milli og breiðið svo restina af deiginu yfir.
Bakið í um það bil 25-30 mínútur eða þar til bakað í gegn.
Gerið kremið á meðan kakan er í ofninum. Pískið öllum hráefnum saman og bætið heitu kaffi smám saman út í þar til kremið er passlega þykkt.
Hellið kreminu yfir heita kökuna og látið standa í 15 mínútur áður en borin fram.
-
Markaðurinn5 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni6 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt7 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt3 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt2 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð




