Frétt
Ólöglegt litarefni fannst í paprikukryddi – Neytendur varaðir við
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Ungverskri papriku frá Pottagöldrum vegna þess að hún inniheldur Sudan III sem er ólöglegt litarefni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Pottagaldrar
- Vöruheiti: Ungversk paprika
- Framleiðandi: Pottagaldrar
- Innflytjandi: Pottagaldrar
- Framleiðsluland: Spánn, Peru, Kína
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 12.3.2027
- Geymsluskilyrði: Þurr og myrkur staður
- Dreifing: Vöruhús Krónunnar, Vöruhús Samkaupa, Fjarðarkaup, Aðföng
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Markaðurinn6 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn6 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Frétt18 klukkustundir síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



