Markaðurinn
54% erlendra ferðmanna borða lambakjöt – Merki Icelandic Lamb vel þekkt

Samkvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir markaðsstofuna Icelandic lamb í nóvember og desember 2017, borðar rúmur helmingur erlendra ferðamanna íslenskt lambakjöt. 50% borða lambakjöt á veitingastöðum en 13% borða lambakjöt sem keypt er í búð. Nokkur skörun er á milli þessara hópa en samtals borða 54% þeirra erlendu ferðamanna sem koma til Íslands einhvern tíma lambakjöt í ferðinni. Líkurnar aukast eftir því sem þeir dvelja lengur á landinu.
Öflugt samstarf við veitingastaði og verslanir
Markaðsstofan Icelandic lamb rekur öfluga markaðsherferð til að kynna íslenskar sauðfjárafurðir fyrir erlendum ferðamönnum. Hluti hennar er netherferð þar sem um myndböndum og öðru efni er dreift á samfélagsmiðlum. Icelandic lamb er í samstarfi við um 110 veitingastaði og sérverslanir sem setja lambakjöt í öndvegi.
27% erlendra ferðamanna þekkir merkið
Öll markaðssetningin er undir sérstöku merki Icelandic lamb. Gallup kannaði þekkingu erlendra ferðamanna á merkinu. Alls þekktu 27% svarenda merkið. Af þeim sögðust 48% hafa mjög jákvætt viðhorf til þess. 25% sögðust hafa nokkuð jákvætt viðhorf en 26% hvorki jákvætt né neikvætt viðhorf gagnvart merkinu.
Árangurinn kemur ánægjulega á óvart
Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic lamb, segir þessar niðurstöður hafa komið ánægjulega á óvart.
„Við fengum Gallup til að gera þessa könnun til að mæla árangurinn af okkar vinnu. Við vorum að vona að þeir sem þekktu merkið yrðu ekki færri en 10% ferðamanna. Að 27% skuli þekkja er framar öllum okkar vonum. Svo er líka sérstaklega ánægjulegt hversu jákvæðir ferðamennirnir eru gagnvart því. Þetta er mikil hvatning fyrir okkur að halda áfram og gera enn betur á næstu misserum.“
Um Icelandic lamb
Markaðsstofan Icelandic lamb er í eigu Markaðsráðs kindakjöts sem er samstarfsvettvangur Landssamtaka sauðfjárbænda, Landssamtaka sláturleyfishafa og Bændasamtaka Íslands. Markaðsstofan var sérstaklega stofnuð til að framkvæma verkefnið Aukið virði sauðfjárafurða samkvæmt 10. gr. samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar frá 19. febrúar 2016 og sérstökum samningi þar um við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Verkefnið er til 10 ára. Tilgangurinn með því er að auka vitund erlendra ferðamanna um íslenskar sauðfjárafurðir og vinna að sérstökum markaðssetningarverkefnum á kröfuhörðum mörkuðum erlendis.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanSkyrunnendur fá tvær nýjar ástæður til að gleðjast
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt4 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn3 dagar síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu
-
Markaðurinn2 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði




