Markaðurinn
Yfirmatreiðslumanneskja í hjarta Orkuveitunnar
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík – Fullt starf
Umsóknarfrestur: 10.06.2024
Við leitum að framsýnni manneskju til að leiða teymi matstofu í metnaðarfullu eldhúsi sem er þekkt fyrir afburða matargerð. Matstofan okkar hefur oft verið nefnd hjarta Orkuveitunnar enda drifin áfram af metnaði og ástríðu fyrir því að gera vel. Við sjáum um hádegismat fyrir 400-500 einstaklinga á hverjum degi og kappkostum við að framreiða fjölbreyttan, næringarríkan og hollan mat.
Það styttist í að við opnum nýjan hluta höfuðstöðva okkar þar sem við erum að hanna vinnustað framtíðarinnar. Í því skiptir máli að hjartað okkar fái að njóta sín og mikil tækifæri fyrir réttan aðila við að móta matstofu framtíðarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stjórnun og daglegur rekstur matstofu Orkuveitunnar
- Útbúa og þróa matseðla
- Tryggja að eldhúsið fylgi gæða- og öryggisstöðlum
- Gerð rekstraráætlana
- Stjórnun á birgðum og innkaupum
- Samvinna við aðrar deildir og tryggja hátt þjónustustig
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun í stóreldhúsi
- Framúrskarandi hæfni í matargerð og skapandi nálgun á matreiðslu
- Leiðtogahæfileikar og góð samskiptahæfni
- Skipulagsfærni og geta til að vinna undir álagi
- Góð þekking á hreinlætis- og öryggisstöðlum í eldhúsum
- Þekking á svansvottuðu eldhúsi er kostur
- Menntun í matreiðslufræðum
- Meistararéttindi í matreiðslufræðum kostur
Hvernig vinnustaður er Orkuveitan? (kynningarmyndband)
Orkuveitan samanstendur af móðurfélaginu og fjórum dótturfélögum, Orku náttúrunnar, Veitum, Ljósleiðaranum og Carbfix og hefur það hlutverk að styðja vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á framsýni, hagsýni, heiðarleika og frumkvæði. Rannsóknir hafa sýnt að fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs og við hvetjum öll sem uppfylla grundvallarskilyrði starfsins til að sækja um, óháð því hvort þau haki í öll boxin.
Við virkjum fólk til árangurs fyrir samfélagið
Hjá Orkuveitunni leggjum við áherslu á að vinna með fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem býr yfir eða hefur vilja til að byggja upp þá hæfni sem hentar verkefnum hverju sinni. Við tökum forystu í verkefnum og hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi.
Við tryggjum góðan aðbúnað, sveigjanleika og sköpum starfsfólki aðstæður til að samræma kröfur vinnu og annarra þátta lífsins. Við nýtum okkur tækni í starfsumhverfi og starfsfólk nýtur jafnréttis. Saman erum við lipur, lærdómsfús og óhrædd að prófa nýja hluti til að skapa eftirtektarverðar lausnir og ná hámarks árangri fyrir viðskiptavini og samfélagið.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2024.
Nánari upplýsingar veitir Kristrún Dröfn Jóhannsdóttir, forstöðukona Innri þjónustu, á netfanginu [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Keppni2 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn24 klukkustundir síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði




