Keppni
Wiktor Pálsson hreppti 2. sætið í Ungkokkur Norðurlanda
Nú um helgina var Norðurlandaþing matreiðslumeistara haldið í Hörpu. Hingað til lands kom fjöldinn allur af matreiðslumönnum frá öllum Norðurlöndunum, bæði til að ræða hin ýmsu mál matreiðslunnar og taka þátt í keppnum á vegum félagsins.
Ráðstefnugestir tóku þátt í áhugaverðum fyrirlestrum þar sem konur í veitingageirunum voru áberandi. Frú Elíza Reid forsetafrú tók þátt í pallborðsumræðum ásamt matreiðslukonum frá öllum Norðurlöndunum. Er það samdóma álit gesta að ráðstefnan hafi verið sérlega vel heppnuð í ár, í glæsilegum húsakynnum Hörpunnar.
Öll aðstaða var til fyrirmyndar og er samstarfsaðilum (Electrolux, Fastus, Figgjo, Ecolab, Duni, Sterling, Unilever Food Solutions, Segers) þakkaður stuðningurinn.
Samhliða ráðstefnunni fóru fram keppnir um framreiðslumann Norðurlanda, ungkokk Norðurlanda og matreiðslumann Norðurlanda. Keppnin var æsispennandi og mátti varla á milli sjá eða bragða hver myndi sigra. Úrslitin voru kynnt í Norðurljósa sal Hörpunar nú á 8. tímanum í kvöld við mikinn fögnuð.
Úrslitin voru eftirfarandi:
- Matreiðslumaður Norðurlanda 2019 er Henric Herbertsson frá Svíþjóð
- Ungkokkur Norðurlanda er Aron Espeland frá Noregi
- Framreiðslumaður Norðurlanda er Nicolai Martens frá Danmörku
Efstu þrjú sætin í Matreiðslumaður Norðurlanda raðast sem hér segir:
1. sæti – Henric Herbertsson frá Svíþjóð
2. sæti – Kjell Patrick Örmen Johnsen frá Noregi
3. sæti – Niko Suomalainen frá Finnlandi
Allir keppendur í úrslitum sem kepptu um titilinn Matreiðslumaður Norðurlanda 2019:
- Garðar Kári Garðarsson – Ísland
- Niko Suomalainen – Finnland
- Kjell Patrrick Johnsen – Noregur
- Henric Herbertsson – Svíðþjóð
- Jesper Dams Hansen – Danmörk
Efstu þrjú sætin í Ungkokkur Norðurlanda raðast sem hér segir:
1. sæti – Aron Espeland frá Noregi
2. sæti – Wiktor Pálsson frá Íslandi
3. sæti – Casper Correll frá Danmörku
Allir keppendur í úrslitum sem kepptu um titilinn Ungkokkur Norðurlanda 2019.
- Wiktor Pálsson – Ísland
- Niall Larjala – Finnland
- Aron Espeland – Noregur
- Anton Roos – Svíðþjóð
- Casper Correll – Danmörk
Efstu þrjú sætin í Framreiðslumaður Norðurlanda raðast sem hér segir:
1. sæti – Nikolai Martens frá Danmörku
2. sæti – Kristoffer Aga frá Noregi
3. sæti – Noora Sipilä frá Finnlandi
Allir keppendur í úrslitum sem kepptu um titilinn Framreiðslumaður Norðurlanda 2019.
- Hilmar Örn – Ísland
- Noora Sipilä – Finnland
- Kristoffer Aga – Noregur
- Nikolai Martens – Danmörk
Myndir: Árni Þór Arnórsson
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn18 klukkustundir síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt4 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann





