Markaðurinn
Viltu vinna í hjarta Húsavíkur? Fosshótel leitar að kokki
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Húsavík óskar eftir að ráða kokk til að vinna á 12 tíma vöktum. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Starfssvið
Umsjón, skipulagning og þátttaka í matreiðslu og bakstri.
Frágangur og geymsla á matvælum.
Eftirlit með hreinlæti, HACCP.
Aðstoð við innkaup og birgðaumsjón.
Aðkoma að gerð matseðla í samráði við yfirmann.
Hæfniskröfur
Menntun í matreiðslu kostur en ekki skilyrði.
Reynsla af sambærilegum störfum er skilyrði.
Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
Frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum.
Öryggisvitund og þekking á HACCP kostur.
Fosshótel Húsavík er glæsilegt hótel staðsett í hjarta Húsavíkur og í göngufæri við höfnina. Það býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir fundi, veislur og ráðstefnur fyrir allt að 350 manns. Áhersla er lögð á hlýlegt viðmót og persónulega þjónustu.
Lærðu meira um Fosshótel Húsavík.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 01.04.2026
-
Keppni4 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Frétt6 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Markaðurinn2 klukkustundir síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Frétt2 dagar síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanDala Auður lyftir pizzunni á nýtt stig




