Markaðurinn
Reyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
Íslandshótel leitar að reyndum og ábyrgðarfullum kokki – vaktstjóra til starfa á Fosshótel Stykkishólmi. Vaktstjóri er lykilstarfsmaður í eldhúsi og ber ábyrgð á faglegri vaktstjórn, daglegum rekstri eldhúss og leiðsögn starfsfólks á sinni vakt, undir stjórn næsta yfirmanns.
Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vaktstjórn í eldhúsi og fagleg leiðsögn starfsmanna á vakt
- Umsjón með daglegum rekstri eldhúss, þar með talið matreiðslu, undirbúningi og frágangi
- Eftirlit með gæðum, hreinlæti og öryggi samkvæmt verklagsreglum og HACCP
- Þátttaka í innkaupum, birgðahaldi og vörumóttöku í samstarfi við yfirmann
- Umsjón með þjálfun og fræðslu starfsmanna á vakt
- Miðlun upplýsinga milli vakta og samstarf við aðra stjórnendur
- Aðkoma að skipulagi vaktaplana og mönnun eftir þörfum
Hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð samskiptafærni, jákvætt viðmót og sterk þjónustulund
- Frumkvæði, skipulag og nákvæmni í vinnubrögðum
- Öryggisvitund og þekking á HACCP er kostur
Í boði er húsnæði til leigu.
Fosshótel Stykkishólmur er þriggja stjörnu hótel með einstaklega fallegt útsýni yfir bæinn og eyjarnar í kring. Hótelið er tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja ferðast um Snæfellsnesið eða sigla um eyjarnar og skoða hið einstaka dýralíf sem þar finnst. Á hótelinu er að finna hlýlegt veitingahús sem býður upp á a la carte seðil þar sem hráefnið er sótt úr nærumhverfinu og innblásturinn kemur úr náttúrunni.
Lærðu meira um Fosshótel Stykkishólm
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




