Markaðurinn
Langar þig að vinna á Vestfjörðum? Fosshótel Vestfirðir auglýsir eftir þjónum
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Vestfirðir óskar að ráða til sín þjóna á kvöldvaktir frá 21. apríl – 1. október. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni:
- Fagleg þjónusta og samskipti við gesti í veitingasal
- Upplýsingagjöf um matseðil og hráefni
- Framreiðsla á mat og drykk ásamt undirbúningi og uppsetningu
- Halda vinnusvæði snyrtilegu og hreinu
- Frágangur, þrif og eftirlit með hreinlæti samkvæmt HACCP
- Reikningagerð, móttaka greiðslna og uppgjör
- Umsjón með starfsmannamat og önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund.
- Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
- Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
- Lágmarksaldur 20 ára.
Í boði er húsnæði til leigu.
Hentar einnig vel fyrir vini eða pör.
Vestfirðir eru þekktir fyrir stórbrotið landslag og ósnortna náttúru. Fosshótel Vestfirðir er fallega innréttað og glæsilegt þriggja stjörnu hótel á Patreksfirði. Þaðan er stutt í stórkostlegar náttúruperlur eins og Látrabjarg, Rauðasand og fossinn Dynjanda.
Lærðu meira um Fosshótel Vestfirði
Fullt starf – Umsóknarfrestur: 01.04.2026
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




