Markaðurinn
Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Húsavík
Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Húsavík.
Hótelstjóri skipuleggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins þ.á.m. gestamóttöku, bókunum, veitingastað, þrifum, viðhaldi fasteignar og mannauðsmálum. Hótelstjóri vinnur náið með aðalskrifstofu í sölu og markaðsmálum og sér til þess að hótelið uppfylli gæðastaðla og rekstraráætlun fyrirtækisins. Hótelstjóri leiðir hóp starfsmanna og ber ábyrgð á hagkvæmum rekstri með velferð og ánægju starfsmanna og gesta að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
- Árangursrík reynsla sem stjórnandi í hótel og/eða veitingarekstri.
- Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu kostur.
- Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum.
- Fjármálalæsi og greiningarhæfni.
- Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Opera Cloud, Business Central og H3 kostur.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta.
Ábyrgð
- Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna.
- Fjármál og rekstrargreiningar.
- Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun.
- Verkefna- og ferlastýring.
- Rekstur og viðhald fasteignar.
Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni.
Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:
Fagmennska – Samvinna – Hugrekki
Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
Óskir um nánari upplýsingar sendist á Hjört Valgeirsson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, [email protected] eða Ernu Dís Ingólfsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs, [email protected]
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 29.ágúst 2024.
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or5 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or9 klukkustundir síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or14 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn7 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir






