Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Vel heppnað villibráðarkvöld Fjörfisks á Dalvík – Myndir

Birting:

þann

Vel heppnað villibráðarkvöld Fjörfisks á Dalvík - Myndir

Matseðillinn var girnilegur og fjölbreyttur

Starfsmannafélag Samherja á Dalvík, Fjörfiskur, hélt árlegt villibráðarkvöld sl. laugardagskvöld, þar sem starfsfólk og gestir gæddu sér á íslenskri villibráð í veglega skreyttum matsal félagsins. Þetta er í fjórða sinn sem efnt er til slíkrar matarveislu.

Bræðurnir toppa sig á hverju ári

Vel heppnað villibráðarkvöld Fjörfisks á Dalvík - Myndir

Ragnheiður Rut Friðgeirsdóttir formaður Fjörfisks

Ragnheiður Rut Friðgeirsdóttir formaður Fjörfisks segir að villibráðakvöldið hafi verið upphafið að vetrardagskrá starfsmannafélagsins.

„Bræðurnir Sveinn og Bjarni Haraldssynir hafa öll árin séð um eldamennskuna á villibráðarkvöldinu með aðstoð fólks í Fjörfiski. Sveinn er í þrifasveit vinnslunnar hérna á Dalvík en Bjarni býr á Egilsstöðum og kemur hingað norður sérstaklega til að útbúa réttina.

Við erum búin að panta þá aftur á næsta ári því satt best að segja toppa þeir sig á hverju ári, enda algjörir snillingar í eldhúsinu,“

segir Ragnheiður Rut, sem átti einmitt afmæli sl. laugardag og auðvitað sungu gestirnir afmælissönginn fyrir afmælisbarnið.

Blómlegt félagsstarf

Ragnheiður Rut segir fjölmargt á dagskránni hjá starfsmannafélaginu.

„Já, heldur betur. Við erum líklega með fjórtán fasta viðburði á ári, þannig að félagslífið er blómlegt. Tvisvar sinnum á ári erum við með sérstök þjóðarkvöld, þá kynna starfsmenn einstakra þjóða sem starfa hérna rétti frá sínum heimalöndum.

Næst á dagskránni eru litlu-jólin og síðan taka við tónleikar og leikhúsferð, svo eitthvað sé nefnt. Þetta er auðvitað töluverð vinna en þegar allir hjálpast að við undirbúninginn verður allt auðveldara og skemmtilegra.“

Kvöldið verður lengi í minnum haft

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja var gestur á villibráðarkvöldinu.

„Þetta var einstaklega glæsilegt kvöld, maturinn frábær og allir í salnum skemmtu sér konunglega. Samherji hlaut nýverið verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2024 fyrir fiskvinnsluhúsið á Dalvík, sem eitt hið fullkomnasta vinnsluhús í heimi.

Það var því gott tilefni til að fagna og ég segi fyrir mína parta að þetta kvöld verður lengi í minnum haft.

Að baki slíkrar matarveislu og skemmtunar liggur mikill undirbúningur sem skilaði sér í ríkulegri uppskeru starfsfólksins.“

Matseðillinn var sannarlega girnilegur;

Vel heppnað villibráðarkvöld Fjörfisks á Dalvík - Myndir

Eldhúsvaktin: Frá vinstri: Þórdís Ómarsdóttir, Telma Björg Þórarinsdóttir, Bjarni Haraldsson, Sveinn Haraldsson, Snædís Aðalsteinsdóttir.

Forréttir

Villisveppa súpa borin fram með súrdeigsbrauði

Grafinn lax með dilli og kryddjurtum

Lakkrísgrafinn lax

Reyktur lax

Sósur: graflaxsósa, piparrótarsósa

Grafin gæs

Lakkrís grafin gæs

Grafin svartfugl

Reykt gæs

Sólberjasósa

Hvítlauks og bláberjasulta

Aðalréttir

Heiðagæsa bringur sous vide og grillað

Hreindýr sous vide og grillað

Gæsalæra confit

Hrossafille í soja og wasabi

Villibráðarsósa

Meðlæti

Sætkartfölumús

Waldorf salat

Salat

Rótargrænmeti

Eftirréttur

Marengsbomba að hætti Fanneyjar og Júlíu í eldhúsinu.

Myndir: samherji.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss
  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.

Mest lesið