Frétt
Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í kjötsúpu frá Ora
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjötsúpu í 1/2 dós frá Ora vegna þess að hún inniheldur ofnæmisvaka soja og mjólk sem ekki eru merktir á dósinni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu
- Vörumerki: Ora
- Strikamerki: 5 690519 222304
- Vöruheiti: Kjötsúpa ½ dós niðursoðin
- Framleiðandi: Ora (Myllan-Ora ehf)
- Lotunúmer: L101257 / best fyrir dagsetning: 19.09.2028
- Dreifing: Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Vöruhús Samkaupa
Neytendur sem keypt hafa vöruna og eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og / eða mjólk eru beðnir um að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til OJK – Ísam eða þar sem varan var keypt.
Mynd: ora.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun11 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn10 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni12 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Markaðurinn7 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan




