Markaðurinn
Tvö áhugaverð námskeið fyrir framlínufólk og stjórnendur
Þann 9. júní nk. hefjast tvö áhugaverð námskeið fyrir framlínufólk og stjórnendur í hótel- og veitingageiranum. Námskeiðin eru á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs og verða haldin í gegnum Teams fjarfundar- og samskiptakerfið auk vinnustofu.
Framlínan og þjónusta
Á námskeiðinu Framlínan og þjónusta er markmiðið að auka færni þátttakenda í þjónustu við viðskiptavini. Það er tvískipt, vefnám auk vinnustofu þar sem unnið er með raundæmi. Fjallað er um leiðir til þess að auka gæði í þjónustu, hvernig á að nálgast viðskiptavini viðskiptavininn, takast á við kvartanir, sölumál og fl.
Framlínustjórnun
Námskeiðið Framlínustjórnun er hugsað til þess að auka færni framlínustjórnenda, millistjórnenda og vaktstjóra. Námskeiðið er tvískipt, þ.e. vefhluti og handleiðsla. Á námskeiðinu er fengist við ýmis hagnýt atriði sem tengjast samskiptum á vinnustað, starfsmannamálum, erfiðum málum á vinnustað og þá áskorun sem fylgir því að stýra hópi jafningja. Námskeiðið er sneisafullt af margvíslegum hagnýtum ráðum.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




