Markaðurinn
Þjálfun og kennsla á vinnustað – Meistarar og tilsjónarmenn nema á vinnustað
Farið er yfir hagnýtar aðferðir sem tengist þjálfun nema á vinnustað. Fjallað er um hlutverk þjálfara á vinnustað, að vera fyrirmynd, um samskipti á vinnustað, um stjórnun og markmiðasetningu sem aðferð til að ná árangri, að meta frammistöðu nema, þjálfun að gagnrýna, leiðrétta og hrósa.
Það eru nokkur atriði sem gera góðan kennara og eitt þeirra er að vera traustur bakhjarl sem gerir faglegar kröfur til sjálfs síns og annarra. Annað er að vera óhræddur við að opna umræðu um það sem gengur vel og það sem má betur fara. Það reynir á margskonar færni í verklegri kennslu eins og að spyrja réttra spurninga og skilja rétt sem og færni í stjórnun fólks.
Meðal þess sem tekið verður fyrir:
- Mikilvægi fyrirmyndarhlutverksins
- Aðstæðubundin stjórnun
- Aðferðir jafningjastjórnunar
- Færni við að gagnrýna, leiðrétta og hrósa
- Ræða hlutverk meistara og tilsjónarmanns og væntingar sem nemar hafa
- Markmiðasetning sem aðferð til að ná árangri.
Ávinningur
- Meiri færni í samskiptum
- Þjálfun í að ræða mál eins og frammistöðu
- Skilningur á mikilvægi faglegra vinnubragða
- Skýrari sýn á hlutverk þjálfara.
HVAR OG HVENÆR
| DAGSETNING | KENNT | FRÁ | TIL | STAÐSETNING |
|---|---|---|---|---|
| 23.01.2023 | mán. | 09:00 | 12:00 | Fjarnám |
| 26.01.2023 | fim. | 09:00 | 12:00 | Fjarnám |
Hefst 23. jan. kl: 09:00
- Lengd: 6 klukkustundir
- Kennari: Eyþór Eðvarðsson
- Án endurgjalds
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju




