Vertu memm

Starfsmannavelta

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar

Birting:

þann

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir.
Ljósmyndari: Anna Maggý.

Matreiðslumeistarinn margverðlaunaði og góðkunni Snædís Xyza Mae Jónsdóttir hefur verið ráðinn yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavik Kitchen & Bar.  Snædís er einn af fremstu kokkum landsins og það verður spennandi að fylgjast með henni á þessum einstaklega glæsilega veitingastað við Lækjargötuna.

Ferill Snædísar er glæstur en hún hóf ferilinn á Sushi Social, Apótekinu og Hótel Sögu þar sem hún útskrifaðist árið 2018. Einnig starfaði hún sem yfirmatreiðslumaður á Silfru hjá ION Hótels og stýrði eldhúsinu þar auk þess að taka við þjálfun Kokkalandsliðsins.

Sjá einnig: Snædís kveður ION hótelið

Snædís hefur sannað sig sem einn fremsti matreiðslumeistari landsins en hún hefur að auki víðamikla keppnisreynslu. Hún var aðstoðamaður Kokkalandsliðsins 2015 og tók þátt ásamt liðinu á Ólympíuleikum 2016. Hún var fyrirliði liðsins þegar það náði sínum besta árangri, 3. sæti á Ólympíuleikunum 2020 og var það í fyrsta skipti sem íslenska kokkalandsliðið komst á verðlaunapall. Hún tók við þjálfun landsliðsins í apríl 2023 og leiddi liðið á pall og náði 3. sæti. auk þess að hljóta tvenn gull­verðlaun og sig­ur fyr­ir „heita seðill“.

Sjá einnig: Snædís áfram þjálfari Kokkalandsliðsins

Það eru ófá verðlaunin sem Snædís hefur hlotið á ferlinum en hún hreppti 1. sætið í keppninni Eftirréttur ársins 2018, 1. sæti í Arctic Challenge keppninni, að auki hefur Snædís náð 4. sæti árið 2019 og 6. sæti árið 2023 í keppninni um titilinn Kokkur ársins. Nýverið var Snædísi matreiðslumeistara veitt Cordon Blue orða Klúbbs matreiðslumeistara, en orðan er veitt þeim sem sýnt hafa fram á framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins.

Sjá einnig: Snædís Xyza Mae sæmd Cordon Bleu orðu Klúbbs matreiðslumeistara

Snædís er fagmaður fram í fingurgóma sem hefur komið henni í fremsta flokk matreiðslumanna heims.  Það verður spennandi að fylgjast með Snædísi á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar.

Um Fröken Reykjavík Kitchen & bar

Fröken Reykjavík Kitchen & bar er staðsett á Hótel Reykjavík Sögu við Lækjargötu. Hótelið er með glæsilegri hótelum landsins og telur 130 herbergi. Á hótelinu er einnig líflegur bar, vínherbergi og heilsulind með líkamsræktaraðstöðu.

Hótel Reykjavík Saga er hluti af Íslandshótelum sem  eiga og reka 18 hót­el með allt að 2.000 gist­i­rými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. 

Mynd: aðsend / Ljósmyndari Anna Maggý.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið