Smári Valtýr Sæbjörnsson
Slippurinn fagnaði sumrinu með glæsilegri veislu – „Takk fyrir frábært matarævintýri…“

Kokka teymið
F.v. Karl Óskar (nemi ársins 2014), Kevin (frá Grænlandi), Gísli Matthías, Aníta Ösp (sous chef), Magnús Már og Eric (frá New York)
Undanfarin 2 ár hefur veitingastaðurinn Slippurinn í Vestmannaeyjum endað sumarið á svokallaðri Haustveislu þar sem farið er í margrétta ferðalag um allt það besta sem haustið hefur upp á að bjóða.
Það var síðan 9. maí s.l. sem boðið var upp á Vorveislu, sælkeraveislu sem setur tóninn fyrir sumarið. Hugmyndafræðin á bakvið rétti sumarsins var tekin aðeins lengra og útfærð á skemmtilegan hátt.
Á hverju borði voru miðar með nánari lýsingu á öllum réttum sem hægt er að lesa með því að
smella hér.
Hér að neðan er matseðillinn:
Birki & sýrður rjómi
~0~
Loðna, grafinn gúrka & brauð
~0~
Spergilkál, leturhumar & gerjaður hvítlaukur.
~0~
Hörpuskel með sítrónu & graslauk.
~0~
Brauð & smjör.
~0~
Grafið folald, ostur, svartrót og truffla.
~0~
Saltfiskur, stappaðar kartöflur & reykt súrmjólk.
~0~
Svið & meðlæti.
~0~
Heill Koli, tómatar & kapers.
~0~
Hrefna, brennt blómkál & sýrt.
~0~
Skyr & hundasúrusúpa.
~0~
Rabbarabaka & rjómaís.
- Birki & sýrður rjómi
- Loðna, grafinn gúrka & brauð.
- Spergilkál, leturhumar & gerjaður hvítlaukur.
- Hörpuskel með sítrónu & graslauk.
- Grafið folald, ostur, svartrót og truffla.
- Saltfiskur, stappaðar kartöflur & reykt súrmjólk.
- Heill Koli, tómatar & kapers.
Ummæli gesta frá kvöldinu:
Þökkum kærlega fyrir matarupplifun á heimsmælikvarða ,þar sem hver réttur kom manni stöðugt á óvart, bæði fyrir bragð og frumlegt og frábært hráefni. Þjónustan er líka algjörlega frábær hjá ykkur að maður tali ekki um yndislegt og afslappað andrúmsloft. Þetta var eins og að vera staddur í ævintýri. Ástarþakkir fyrir okkur. Haldið áfram á sömu braut. Okkar bestu kveðjur.
Takk fyrir frábært matarævintýri í gærkvöldi.
Þetta var ótrúlega flott og skemmtilegt. Frábær og spennandi matur, fallegt umhverfi og einstök þjónusta. Það var svo gaman að prófa alla þessa óvenjulegu rétti og samsetningar sem komu alltaf skemmtilega á óvart. Hugmyndaflugi ykkar eru greinilega engin takmörk sett. Eins og Kristín sagði þá verður þetta ein af þeim máltíðum sem við munum alltaf minnast. TAKK FYRIR OKKUR
Myndir tók Magnús Már, yfirmatreiðslumaður á UNO og eru birtar hér með góðfúslegu leyfi hans.
![]()
-
Frétt3 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Keppni1 dagur síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn6 dagar síðanEndurnýjaðu ræstibúnaðinn fyrir veturinn
-
Frétt6 dagar síðanBrautryðjendur í lífrænni ræktun heiðraðir











